Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1966, Qupperneq 3

Skinfaxi - 01.12.1966, Qupperneq 3
Kristján Ingólfsson. á Austurlandi Ungmenna og íþróttasamband Aust- urlands hefur undanfarið unnið gott starf við erfiðar aðstæður, og gert á- tök, sem vakið hafa verðuga athygli. Augu ungmennafélaga hljóta á næst- unni að beinast í æríkara mæli aust- ur þangað, því að ÚÍA mun sjá um undirbúning framkvæmda næsta landsmóts UMFÍ, sem haldið verður að Eiðum 1968. Af þessu tilefni náði Skinfaxi tali af formanni UÍA, Kristjáni Ingólfs- syni skólastjóra á Eskifriði, og spurði ^ann um starfið á Austurlandi og hug ungmennafélaganna þar til naesta landsmóts. ■— Við höfum undanfarin ár verið að byggja upp félags og íþróttastarf, sem komið var í ördeyðu. Það þarf stórt átak til að vinna þetta starf upp, en við höfum fengið hvatningu og styrk frá almenningi og yfirvöldum a Austurlandi, sem hafa látið okkur íinna að þessir aðilar meta viðleitni forystu ungemnnafélaganna til að efla þetta starf. — Hvers vegna var ástandið orðið svona slæmt? —1 í Austfirðingafjórðungi öllum skinfaxi búa aðeins 5,61 prósent þjóðarinnar, en þaðan kemur Vz af allri útflutn- ingsframleiðslu landsmanna. Það leið- ir af líkum, að fólkið á Austurlandi hefur mikið að gera. Síldveiðarnar, síldarvinnslan og öll uppbyggingin í kringum þetta kallar til sín hverja einustu vinnufæra hönd jafnt til sjáv- ar og sveitar. Það gefur að skilja að þetta vinnukapphlaup gefur lítið næði til félagsstarfa eða tómstunda- iðju. En þetta ástand getur þó ekki varað lengi án þess að sterkar raddir krefjist þess að eðlileg og nauðsyn- leg félagsleg þörf æskunnar fái heil- brigða útrás. Fyrstu árin eftir að hin mikla síld- veiði fyrir Austurlandi hófst lá allt starf UÍA niðri að mestu leyti. Nú eru málin aftur á góðri leið fram á við, og við erum vongóðir. Við finnum allstaðar velvilja og stuðning almenn- ings, og ég er viss um, að ekkert sam- band nýtur eins góðs skilnings opin- berra ráðamanna í héraði og við. — Hver eru helztu vandamálin í ykkar uppbyggingarstarfi? — Útvegun íþróttakennara veldur okkur mestum vanda núna. Við höf- 3

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.