Skinfaxi - 01.12.1966, Blaðsíða 4
um ekki getað fengið kennara nema
fyrir tímabilið janúar — ágúst, og
undanfarin ár höfðum við orðið að
fá þá frá Noregi. Það hafa verið góð-
ir íþróttakennarar, en að sjálfsögðu
hefðum við frekar kosið íslendinga
í þetta starf. Skortur á íþróttamann-
virkjum hefur líka staðið starfinu
fyrir þrifum, en ástandið í þeim efn-
um er að batna. Verið er að gera
fjóra íþróttavelli og tvær íþróttahúss-
byggingar eru á döfinni.
Skógarhátíðir
— Skógarhátíðir ykkar í Hallorm-
staðaskógi hafa vakið athygli víða,
4
Náttúrufegurð Fljóts-
dalshérað er víð
brugðið. Mynd-
in sýnir útsýni yfir
Hallormstaðaskóg.
(Ljósm.: Þorst. Jó-
sepsson).
ekki síst fyrir hinar ströngu reglur
um algert áfengisbann á þeim.
— Já, það voru ýmsir smeykir við
þessi áform í fyrstu, en það var á árs-
þingi UÍA 1964 að samþykkt var að
halda áfengislausa skemmtun í Hall-
ormstaðaskógi um verzlunarmanna-
helgina. Áður hafði áfengisneyzla á
slíkum skemmtunum keyrt um þver-
bak og valdið mörgum þungum á-
hyggjum. Forysta UÍA vann að und-
irbúningnum í samráði við og með
fulltingi þeirra Axels Tuliníus sýslu-
manns og Sigurðar Blöndals skógar-
varðar.
Fyrsta hátíðin var svo haldin í
fyrra. Löggæzlu annaðist lögreglulið
SKINFAXI