Skinfaxi - 01.12.1966, Side 7
STEFÁN JASONARSON, FORM.
ÞRASTASKÓGARNEFNDAR UMFÍ:
Dýrmæt
eign
ungmenna-
félaga
Hinn mikilhæfi athafnamaður,
^ryggvi Gunnarsson, sýndi ung-
mennahreyfingunni mikla vinsemd
og mikið traust, er hann gaf Ung-
mennafélagi íslands Þrastaskóg.
Þessi fagri lundur, sem klæddur er
fjölbreyttum gróðri ogíslenzkabjörk-
in skipar öndvegið, en blágresi, berja-
ling og annar lággróður fyllir uppí,
þar sem björkin er ekki einráð í
gróðurbeðinu, liggur meðfram Sog-
inu og Álftavatni. Landslag í Þrasta-
skógi er með afbrigðum vinalegt og
flölbreytt. Þar skiptast á skjólgóðir
hvammar, hraunbollar, hæðir og
brekkur. Handan við Sogið rís Ing-
ólfsfjall og setur sinn svip á umhverf-
ið, er það speglast dimmblátt á síð-
kvöldum, í spegilsléttu Soginu.
Fyrr á árum var starfrækt sumar-
gistihús í Þrastaskógi. Það bar nafn-
ið ÞRASTALUNDUR. Reisulegt hús,
vel um gengið og vinsælt af ferða-
mönnum er leið áttu um þjóðveginn,
sem þar er skammt frá, allmikið not-
að til mannfunda ýmiskonar. M.a.
SKINFAXI
Stefán Jasonarson.
voru ársþing U.M.F.Í. háð þar öðru
hvoru.
í síðari heiimsstyrjöldinni var
Þrastalundur hersetinn af erlendu
setuliði og lauk hersetunni á þann
veg að húsið brann til kaldra kola,
á hernámsárunum.
Mörgum þótti skarð fyrir skyldi er
Þrastalundur var horfinn, en rústir
einar, þar sem áður var reisulegt hús.
-----— Og árin liðu, án þess að
nokkuð væri aðgert í þessu efni. En
inní skóginum átti skógarvörðurinn,
Þórður Pálsson, sumarbústað. Undir
stjórn skógarvarðarins komu ung-
mennafélagar úr nágrannabyggðum,
saman í Þrastaskógi og gróðursettu
trjáplöntur í allstórum stíl á hverju
vori. Og á flötinni inn við Tryggva-
tré voru öðru hvoru haldnar samkom-
ur á vegum ýmissa félagasamtaka.
Voru þær vel sóttar og vinsælar.
Þannig liðu árin. Þrastaskógur var
vinsæll staður, vegna fegurðar og
fjölbreytni, en forráðamönnum U.M.
F.í. var það vel Ijóst, að æskileg fram-
7