Skinfaxi - 01.12.1966, Síða 17
frjálsíþróttamótið er knattspyrna
milli Mýrarsýslu og Borgarfjarðar-
sýslu. Þá var að þessu sinni fenginn
að glímuflokkur til að sýna íþrótt
sína, í því skyni að örva hemamenn
í þeirri grein.
UMSB stóð að sumarbúðum í
Reykholti, en þáttaka innan héraðs
var frekar dræm.
Guðmundur
Sigurðsson,
form. XJMSB.
Sambandið efndi nú í fyrsta sinn
til bikarkeppni í knattspyrnu á svæð-
inu, og tóku þrjú lið þátt í henni. Sig-
urvegarar urðu Umf. Þrestir. Eitt fé-
lag á sambandssvæðinu, Umf. Skalla-
grímur, tók í 3.-deildarkeppni KSÍ
°g sömuleiðis í bikarkeppni Körfu-
knattleikssambandsins.
íþróttasvæði UMSB að Varmalandi
er því miður ekki komið í nothæft
ástand ,en vonandi stendur það til
bóta, því heita má, að enginn íþrótta-
völlur sé á sambandssvæðinu, og fara
íþróttamót því ennþá fram á Hvíár-
bökkum.
Loks má geta þess, að yfir standa
örnefnamerkingar á vegum sam-
bandsins.
Ársbing.
44. þing UMSB var haldið að
Kleppjárnsreykjum 24. apríl s.l. Full-
trúar voru 31 frá 10 félögum. Sigurð-
ur Guðmundsson skólastjóri, stjórn-
armaður UMFÍ, sat þingið sem full-
trúi UMFÍ. I UMSB eru nú 603 skatt-
skyldir félagar í 11 ungmennafélög-
um. Niðurstöðutölur fjárhagsáætlun-
ar fyrir 1966 eru kr. 100.000,00. Guð-
mundur Sigurðsson, kennari í Borg-
arnesi var endurkjörinn formaður
sambandsins, en aðrir í stjórn eru:
Jón F. Hjartar ritari, Friðjón Árna-
son gjaldkeri, og Bjarni Helgason og
Sigurður Guðmundsson meðstjórn-
endur.
SUNDMÓT UMSB 1965
KARLAR:
100 m. frjáls aðferð, keppendur 3.
Þorvaldur Jónsson, R 1:18.0 mfn.
200 m. bringusund, keppendur 15.
Eiríkur Jónsson, R 3,31,5 mín.
100 m. baksund, keppendur 6.
Þorvaldur Jónsson, R 1:41,1 mín.
800 m. frjáls aðferð, keppendur 3.
Þorvaldur Jónsson, R 13:46,8 mín.
4x50 m. frjáls aðíerð, 4 sveitir.
Sveit U.M.F. Reykdæla 2:32,8 mín.
KONUR:
100 m. frjáls aðferð, keppendur 4.
Björg Kristófersdóttir, St. 1:27,8 mín.
100 m. bringusund, keppendur 13
Anna Böðvarsdóttir, H 1:45,9 mín.
17
SKINFAXI