Skinfaxi - 01.12.1966, Qupperneq 26
Á Alþingi 1965 voru samþykkt lög- um opin-
bera styrkveitingu til félaga, sem fást við
leiklist. Þar sem leiklistin er þáttur , starfi
margra ungmennafélaga, munu þau geta
orðið aðnjótandi styrkja samkvæmt þessum
lögum, og þess vegna birtum við þau hér í
heild:
l.gr.
Félög sem koma til greina við veit-
ing styrks samkvæmt lögum þessum,
skulu fullnægja skilyrðum í A-,B-
eða C-flokki hér á eftir:
A-flokkur:
1. að sýna a.m.k. tvö leikrit á ári,
sem hvort um sig sé fullkomin
kvöldsýning,
2. að fullgildur leikstjóri setji leik-
ritið á svið,
3. að félagið hafi ráð á húsnæði og
sviðbúnaði, sem nægi til sýninga
á þeim leikritum, sem valin eru
til flutnings.
4. að sýnandi leikrits sé félag, sem
eingöngu fæst við leiklist og ver
ágóða, sem verða kann af sýning-
um, eingöngu til leikstarfsemi
sinnar.
B-flokkur:
1. að sýna a.m.k. eitt leikrit á ári
sem sjálfstæða sýningu og sé það
fullkomin kvöldsýning eða styttri
leikrit með öðru menningarlegu
efni, svo sem upplestri, söng,
hljóðfæraslætti o.fl.
C-flokkur:
1. að sýna a.m.k. eitt leikrit á ári,
sem sérstaklega er ætlað börnum
og sé fullgild sýning.
Tala leikrita hér að framan miðast
einungis við leikrit, sem frumsýnd
hafa verið á leikárinu, en leikrit, sem
haldið er áfram sýningum á frá fyrra
leikári, teljast eigi með.
2. gr.
Ef tekin eru til sýningar ný íslenzk
leikrit eða íslenzkt leikrit, sem eigi
hafa áður verið sýnd á leiksviði, er
heimilt að greiða vegna þeirra sér-
stakan aukastyrk af fé því, sem veitt
er í fjárlögum hverju sinni til leik-
starfsemi samkvæmt nánari ákvörð-
un menntamálaráðuneytisins. Auk
þess er heimilt að styrkja sérstaklega
sýningar á öðrum íslenzkum leikrit-
um.
3. gr.
Stefnt skal að því, að leikrit, sem
sýnd eru á vegum félaga, sem styrks
njóta samkvæmt lögum þessum, séu
menningarlegs eðlis, en eigi sýnd ein-
göngu eða fyrst og fremst til fjár-
öflunar. ,
4. gr.
,Félög, sem styrk njóta samkvæmt
lögum þessum, skulu senda mennta-
málaráðuneytinu fyrir 1. júní ár
hvert endurskoðaðan rekstrar- og
efnahagsreikning fyrir þann þátt
26
SKINFAXI