Skinfaxi - 01.12.1966, Qupperneq 30
3. Þáttökulið hvers svæðis keppi
innbyrðis. Æskilegt er í undankeppn-
inni, að öll liðin á hverju svæði leiki
saman. Verði þátttaka hinsvegar mik-
il, getur orðið nauðsynlegt að fram
fari útslálttarkepphi. Ákvörðun um
þessi atriði yrði tekin, þegar þátt-
tökutilkynningar hafa borizt.
4. Tvö efstu lið hvers svæðis fari í
úrslit. Þau sex lið, sem þá eru eftir
keppi síðan saman tvö og tvö, að
undangengnu hlutkesti. Vinningslið-
in mæti til úrslitakeppni á landsmót-
inu, en hin þrjú fái 5 stig hvert.
5. Á landsmótinu fari fram 3 leikir
í hverri grein hópíþrótta. Stig verði
reiknuð þannig, að fyrir fyrsta sæti
verði gefin 14 stig, annað sæti 11 stig
og þriðja sæti 7 stig.
6. Nefndin leggur til, að nefnd sú,
er hefur fjallað um hópíþróttir á
landsmótum starfi áfram og sjái um
endanlega svæðaskiptingu. Á sama
hátt ráði nerndin leikstjóra í hverri
grein hópíþrótta. Skulu þeir sjá um
framkvæmd keppninnar til loka.
Leikstjórar þessir skulu ráðnir í
samráði við landsmótsnefnd.
Starfsíþróttir
1. Lagt á borð og blómaskreyting.
2. Þríþraut.
3. Jurtagreining.
4. Dráttarvélarakstur.
ö.Gróðursetning trjáplantna.
6. Búfjárdómar: a) Nautgripadóm-
ar, b) Hrossadómar.
7. Netahnýting.
8. Beitning úr stokki.
Almennt um landsmótið
Mótið hefjist með myndarlegri
skrúðgöngu íþróttamanna, framkv.-
30
stjóra mótsins og forystumapna hér-
aðssambanda UMFÍ. Lögð verði á-
herzla á, að keppendur mæti í sam-
stæðum íþróttabúningum og gangi
undir merki síns sambands.
Mótið sé með sem mestum menn-
ingarblæ og sem fjölþættast, og sýni
þannig störf félaganna í sem ríkust-
um mæli og einkum austfirzkt fé-
lagslíf og héraðs.
Leiksýning fari fram og söngur.
Efnt verði til kvöldvöku. Vandað sé
sem mest til hátíðadagskrár seinni
mótsdaginn, svo sem val ræðumanna,
guðsþjónustu og fleira.
Beri framkvæmdanefnd þeissi at-
riði öll undir UMFÍ og UÍA með að
m.k. 3ja mánaða fyrirvara. Leitast sé
til að gera undirbúning mótsins sem
víðtækastan, að það verði sem al-
mennast átak félaganna og verði
prófsteinn á starf sem allra flestra
einstaklinga og gefi þeim tækifæri
til þess að sýna félagslegan þroska og
manndóm.
Fr jálsíþróttaþáttur
Framhald af bls. 11.
hreyfing miðar að því að snúa efri
hluta líkamans í áttina að þeim hluta
stökkgryfjunnar, sem fjær er upp-
stökksstaðnum, og lyfta þannig
seinni fætinum yfir rána (mynd 2).
Nákvæm athugun og skilgreining
á stökkstíl beztu sovézku hástökkv-
aranna (sem árum saman hafa notað
þessa aðferð) sýnir, að þetta eru eng-
in ný sannindi, eins og sumir halda.
(Tom Ecker, frjálsíþróttaþjálf-
ari Western Kentucky State
Collega, Bandaríkjunum).
SKINFAXI