Skinfaxi - 01.02.1968, Blaðsíða 5
um við að verða að ganga á bak orða
okkar, en við höfðum jafnan talið, að
okkur legðist hér eitthvað til sem í
öðru. En, málið leystist á mjög ein-
faldan hátt og með nærtækum starfs-
kröftum. Formaður UlA, Kristján
Ingólfsson skólastjóri á Eskifirði velti
þessu ekki lengi fyrir sér, heldur settist
niður og skrifaði handritið. Fyrir ára-
mótin í vetur var það tilbúið til at-
hugunar. Hlaut það náð fyrir augum
þeirra, sem fengnir voru til yfirlesturs.
Handritið fjallar um Una danska, en
hann nam land á Héraði, og þar með
staðinn, sem landsmótið fer fram á í
sumar.
Leikfélag Neskaupstaðar hefur tek-
ið að sér flutnings þessa leiks. Er þar
með af okkur létt þeim áhyggjum, sem
þetta atriði olli um tíma.
Karlakór Fljótsdalshéraðs æfir söng
af kappi, þegar mögulegt er vegna ó-
veðurs og ófærra vega. Hann mun
syngja.fyrir okkur, svo sem ég hef áð-
ur minnst á. Sitthvað fleira er á döf-
inni sem ég vil ekki fullyrða nú.
Hér hef ég ekki tíundað neitt, sem
ekki hefur verið minnst á áður að
fram skuli fara á mótinu. En ég vil með
þessum línum undirstrika, að undir-
búningur er í gangi, þó að um það megi
svo deila, hvort hann sé í fullum gangi.
Virðist ekki ástæða til að ætla, að
neitt þurfi að strika út af þeim atrið-
um, sem upphaflega var áformað að
þar færu fram.
Vil ég svo í lok þessa spjalls óska
öllum, sem vinna að þátttöku í 13.
landsmóti, góðs gengis.
f.h. landsmótsnefndar
Björn Magnússon.
Dagskrá
13. LANDSMÓT UMFÍ
AÐ EIÐUM
13. OG 14. JÚLÍ 1968
Föstudagur 12. júlí:
20.00 Fundur með flokksstjórum íþróttahópanna og starfsmönn- um mótsins.
I.augardagur 13. júlí:
8.00 Vakið. — Morgunverður.
9.00 Hópganga til íþróttavallar. Fánar dregnir að hún: Fjölda- söngur.
9.15 Mótið sett. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR OG KNATTLEIKIR:
9.30—12.00 100 m hlaup karla (undanr). 100 m hlaup kvenna (undanr). 1500 m hlaup karla (undanr). Kúluvarp kvenna. Kringlukast karla. Hástökk kvenna. Langstökk karla. Spjótkast kvenna.
10.00 Körfuknattleikur karla. (2x15 mín.).
11.00 Knattspyrna (2x30 mín.).
11.00 Handknattleikur kvenna. (2x15 mín.).
12.00—14.30 Matarhlé.
SKINFAXI
5