Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1968, Page 7

Skinfaxi - 01.02.1968, Page 7
BÖÐVAR STEFÁNSSON Kvöldvökur að Borg Hinn 19. febrúar 1966 var félagsheimili Grímsnesinga vígt og hlaut nafnið BORG, svo sem hið gamla samkomu- hús frá 1929 hafði heitið. Við þetta taskifæri gerði undirritaður grein fyrir hugmynd, er rædd hafði verið í hús- nefnd félagsheimilisins, en hún var á þá leið, að leitað skyldi áskrifenda eða styrktarfélaga að 6 samkomum á ári, þar sem áherzla væri lögð á vandað og fjölbreytt efni en aðgangseyri stillt í hóf. Undirtektir samkomugesta voru svo góðar, að augljóst var, að hér var bet- ur af stað farið, en heima setið og var fyrsta kvöldvakan ákveðin 13. marz. Alls urðu styrktarfélagar 105 og var þeim gert að greiða kr. 500,00 fyrir aðgang að sex kvöldvökum. Lausaverð aðgöngumiða var ákveðið kr. 100 fyrir fullorðna, en kr. 50 fyrir börn og ung- linga, og hefur svo haldizt, nema um meiri háttar dagskrá hafi verið að ræða. Því er ekki að leyna, að fyrstu kvöld vökunnar var beðið með nokkurri ó- vissu, þrátt fyrir hinar ágætu undir- tektir. En skemmst frá að segja, hafa kvöldvökurnar undantekningarlaust heppnast mjög vel. Þær hafa allar ver- ið vel sóttar (150—250 manns), og af fólki á öllum aldri. Meðan dagskrár- atriði fara fram, er stólum raðað eins og gerist við leiksýningar, en að lok- inni dagskrá eru borð tekin fram og flestir kaupa sér kaffi með heimabök- uðu kaffibrauði, sem kvenfélagið sel- ur á hóflegu verði. Síðan er dansað í um það bil einn og hálfan tíma, oft af miklu fjöri. Oft er það einn maður, sem leikur á harmoniku, en stundum er meira í lagt. Samkomur þessar eru að sjálfsögðu mest sóttar af Grímsnesingum, en þó alltaf meira og minna af fólki úr allri sýslunni. Áfengis hefur ekki gætt og er það að vísu sjálfsagt, en þó lofsvert. Þeir, sem sækja kvöldvöku í fyrsta sinn, veita því líklega fyrst athygli hversu mikið af börnum og unglingum sækir þessa samkomu ásamt fullorðnu fólki. Áherzla er lögð á það, að kyrrð sé á áhorfendabekkjum meðan dagskrá fer fram, og að mínum dómi eru börnin ekki síðri fullorðna fólkinu um góða hegðun meðan á dagskrá stendur. — Þetta er ákaflega mikilvægt, svo að æskileg tengsl skapist milli flytjenda dagskrár og þeirra er á hlýða. Hvern- ig er þá dagskránni háttað? Oftast er um blandað efni að ræða, fyrirlestur með skugamyndum, einsöng, kvartett- söng, kórsöng, upplestur, danssýning- ar, hljóðfæraleik, getraunir, þjóðdansa. Af fyrirlesurum má nefna Bjarna Bjarnason, fyrrv. skólastj. Laugar- vatni, próf. Þórhall Vilmundarson, dr. SKINFAXI 7

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.