Skinfaxi - 01.02.1968, Síða 11
Skýrsla félagsheimilisins
Aratungu i Biskupstungum 1967
Fundir 29
Opinberir dansleikir 10
Aðrar skemmtanir með dansi 5
Tónleikar og leiksýningar 6
Kennsla og æfingar 70
Leikfimikennsla barnaskólanna 23
Barnaskemmtanir 5
Spilakvöld og kvöldvökur 12
Erfisdrykkjur og veitingar fyrir ferðamenn 13
Hreppsnefndarfundir 10
Konur v. vinnu í eldhúsi 21
Glímumót 1
Ýmsar samkomur 5
Samtals 210
Samkomurnar sóttu alls 12500 manns.
í Félagsheimili Hrunamanna fór fram íþrótta-
kennsla barna- og unglingaskólans og í Ara-
tungu handavinnukennsla skólabarna, og er
þetta ekki talið með í skýrslunum.
í báðum húsunum er bókasafn til húsa, og
í Aratungu er símstöð fyrir Biskupstungur.
I ýmsum fleiri atriðum er ekki fullkomið
samræmi í þessu yfirliti, svo að hæpið er að
gera samanb. á starfseminni í þessum tveim-
ur húsum samkvæmt því, enda er það ekki
hugmyndin með þessu. Hins vegar vona ég,
a ðþetta geti gefið nokkra hugmynd um þá
starfsemi, sem fer fram í félagsheimilunum.
A. K.“
Ungmennasamband Dalamanna
í UMSD eru 8 félög, en sum þeirra hafa
starfað lítið eða ekkert undanfarin ár. —
Onnur hafa starfað vel og náð góðum ár-
angri. UMSD heldur héraðsmót árlega og
taka flest félögin þátt í því. Umf. Dögun á
Fellsströnd hefur unnið stigakeppnina á hér-
aðsmótinu í mörg ár enda hefur starfsemi
félagsins verið góð árum saman og er enn.
Formaður félagsins er Guðmundur Agnar
Guðjónsson, Harrastöðum.
Þrjú af félögunum hafa verið að byggja fé-
lagsheimili nú á síðustu árum, þ. e. Umf.
Stjarnan, Umf. Dögun og Umf. Ólafur pá.
Frá HSÞ
Mánudaginn 11. marz sl. boðaði stjórn HSÞ
til fundar að Laugum með formönnum sam-
bandsfélaganna og fleiri gestum. Mættir voru
formenn frá öllum félögunum að einu undan-
skildu. Formaður HSÞ Óskar Ágústsson setti
fundinn og talaði meðal annars um starf-
semi sambandsins á siðasta ári, verkefnin
á þessu ári og fleira. Verður nú rakið það
helzta sem kom fram á fundinum.
Haldinn voru 5 íþróttamót á sambands-
svæðinu, ennfremur tók HSÞ þátt í 9 íþrótta-
mótum utan héraðs. Sett voru 13 héraðsmet,
þar af 1 íslandsmet í 4x100 m. boðhlaupi
kvenna, 53,2 sek. Þátttakendur í íþróttamót-
um voru 225. Knattspyrna var mikið stunduð
á félagssvæðinu. Völsungur og Mývetningur
tók þátt í III. deildar keppni KSÍ. Lið frá HSÞ
tók þátt I undankeppni landsmóts UMFI og
sigraði í sínum riðli og keppir til úrslita á
landsmótinu í sumar. Ennfremur var sent
lið á Norðurlandsmót í knattspyrnu. Hand-
knattleikur var lítið stundaður nema á Húsa-
vík og kepptu þeir fyrir HSÞ í undankeppni
fyrir landsmót UMFÍ. Skíðaíþróttin er lítið
stunduð á sambandssvæðinu nema á Húsa-
vík, en þar er mjög mikill áhugi fyrir henni
og voru haldin mörg skíðamót, meðal annars
sáu Völsungar um skíðamót Norðurlands.
Mikill áhugi var á sundíþróttinni og hald-
ið var héraðsmót í sundi, ennfremur var hand
knattleikur stundaður á sambandssvæðinu.
Haldið var bindindismannamót í Vaglaskógi
ásamt fleiri aðilum, og tókst það mjög vel.
Tvö sambandsfélög áttu merkisafmæli á ár-
inu, íþf. Völsungur varð 40 ára og Umf. Ein-
ing Bárðardal átti 75 ára afmæli.
Þá voru rædd framtíðarverkefni. Rætt var
um að halda leiðbeininganámskeið að Laug-
um í vor og sagði formaður að komið hafi
fram beiðni frá héraðssamböndum á Norð-
urlandi, að fá að taka þátt í námskeiði þessu.
Þá var rætt um undirbúning fyrir lands-
mótið og verður þeim undirbúningi haldið
áfram. Ennfremur kom fram mjög mikil ó-
ánægja með það hvað landsmótið er haldið
seint og töldu margir að það mundi sennilega
SKINFAXI
n