Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1968, Síða 12

Skinfaxi - 01.02.1968, Síða 12
draga úr þátttöku. Þá var rætt um að koma á námskeiði fyrir börn og unglinga á sam- bandssvæðinu með sama sniði og í fyrra, en það námskeið heppnaðist mjög vel. Gjald- keri sambandsins Arngrímur Geirsson gaf yfirlit yfir fjárhag HSÞ, og kom fram að hann er betri en í fyrra. Gjöld og tekjur stóðust að mestu á og námu um kr. 300,000,00 Margt fleira var rætt á fundinum, m.a. um útgáfu ársrita HSÞ og fl. Dvöldu menn í góðu yfirlæti við raunarlegar veitingar á heimili formanns t.il kl. 1,30 er fundi var slitið. (Frá fróMaritara) Héraðsþing Skarphéðins Héraðsþing Skarphéðins, hið 46. í röðinni, var haldið að Borg í Grímsnesi dagana 27. og 28. janúar sl. Þingið sátu auk stjórnar HSK og margra gesta 57 fulltrúar frá 21 sambandsfélagi. Forsetar voru kjörnir þeir Stefán Jasonar- son og Böðvar Pálsson og ritarar Arnór Karls- son og Þorsteinn Runólfsson. Arsskýrsla var að þessu sinni gefin út prentuð, og er sú útgáfa mjög vönduð og prýdd mörgum myndum. í ávarpi er þess getið, að ástæðan sé einkum sú, að Héraðs- sambandið hafi á sl. ári notið allmikilla og voru haldin mörg skíðamót, meðal annars og konu hans, Sigrúnu Bjarnadóttur, til heið- urs. Akveðið er, að Héraðssambandið láti mála mynd af frú Sigrúnu sem þakklætis- vott fyrir hennar þátt í lifsstarfi manns síns. HSK hefur rekið sumarbúðir að Laugar- vatni sl. tvö ár. Á sl. sumri voru haldin fjögur námskeið, viku í senn fyrir hvern hóp, frá 4. júní til 1. júlí. Þátttakendur voru sam- tals 97 á aldrinum 8 til 12 ára. Aðal leiðbein- andi var Kristín Guðmundsdóttir. Sá þáttur í starfi HSK á sl. ári, sem mesta athygli mun hafa vakið, er landgræðslu- ferðin, er farin var inn á Biskupstungnaaf- rétt 9. og 10. júlí. Vegna mikilla þurrka fyrstu 13 vikurnar eftir að ferð þesi var farin, er vafa- samt að verklegur árangur hennar verði eins mikill og vonir stóðu til, en hafi hún vakið almennan áhuga á landgræðslu, er árangur hennar mikill. í samræmi við samþykkt frá síðasta hér- aðsþingi átti stjórn HSK viðræður við stjórn UMFÍ um framkvæmdir í Þrastaskógi. Unnið var við íþróttasvæðið, og standa vonir til að því verki verði lokið á næsta ári. Félagar úr HSK lögðu fram talsverða sjálfboðavinnu við íþróttasvæðið. Á sl. ári var farið fram á fjárframlög úr sýslu- og sveitarsjóðum á sambandssvæðinu. Bar þetta góðan árangur. Sýslunefnd Ár- nessýslu veitti kr. 20 þúsund og sýslunefnd Rangárvallasýslu kr. 15 þúsund. Sveitar- stjórnirnar veittu flestar kr. 10,00 á ibúa og sumar meira. Aðeins ein sveitarstjórn synj- aði um fjárstyrk. Ekki var leitað til þeirra sveitarfélaga, þar sem ungmennafélög eru ekki starfandi. Búnaðarsamband Suðurlands veitti Héraðssambandinu kr. 15 þúsund og einn velunnari Skarphéðins sendi 1000,00 kr. sem hann óskaði að varið yrði Skarphéðni til framdráttar. Er ekki að efa að öll þessi fjárframlög, sem alls voru kr. 158,845,00 verða sambandinu til framdráttar, og er þess að vænta, að þetta geti orðið fastur liður í tekjum sambandsins. Stjórn HSK þakkar öll- um þessum aðilum veittan stuðning og vel- vild í garð Héraðssambandsins. Skýrt er frá Héraðskvikmynd Suðurlands, sem HSK hafði forgöngu um að farið var að styrkja frá sýslusjóðum, Búnaðarsambandi Suðurlands og sveitarsjóðum á sambands- svæðinu. Það þykir því rétt, að kynna sem flestum héraðsbúum starfsemi HSK svo vel sem kostur er. f yfirliti um störf stjórnar HSK er þess getið, að stjórnin hafi haldið 18 fundi á ár- inu. Framkvæmdastjóri var ekki ráðinn, en stjórnarmenn önnuðust sjálfir framkvæmda- stjórn. Þórir Þorgeirsson hafði með hönd- um yfirumsjón íþróttamála og veitti sumar- búðunum forstöðu. Formannafundur var haldinn að Borg 8. SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.