Skinfaxi - 01.02.1968, Qupperneq 14
íslandsmeistarar Umf. Selfoss í
II. flokki 1967.
sambandsins hafði vaxið um 86 þúsund á
sl. ári og er nú um kr. 285 þúsund. Eignir
eru samtals rúm 500 þúsund.
Auk þess, sem þegar hefur verið minnzt á,
er í skýrslunni minnst 50 ára afmælis Þóris
Þorgeirssonar, íþróttakennara, og sextíu ára
afmælis Umf. Hvatar.
Um kvöldið var kvöldvaka að Borg, og
voru þingfulltrúar þar gestir Umf. Hvatar. —
Ingvi Þorsteinsson, magister, sem var einn
af gestum héraðsþingsins, flutti erindi með
skuggamyndum um gróðurfar á íslandi. Guð-
mundur Jónsson, óperusöngvari söng með
undirleik Þorkels Sigurbjörnssonar og Gísli
Halldórsson, leikari, las upp. Að lokum var
dansað. Kvöldvaka þessi var fjölsótt og þótti
hin bezta skemmtun.
Þingið gerði margar samþykktir. Meðal
þeirra má nefna samþykktir um spurninga-
keppni HSK, söfnun ævifélags, byggingu
samastaðar fyrir sambandið, stofnun björg-
unarsveita, landgræðslumál, æskulýðsmála-
löggjöfina, starfrækslu sumarbúða, þátttöku
í landsmóti UMFÍ að Eiðum, íþróttakennsiu á
sambandssvæðinu, umferðakennslu í skólum
niðurröðun íþróttamóta, fjármál o. fl.
Stjórn HSK var öll endurkjörin, en hana
skipa: Jóhannes Sigmundsson, Syðra-Lang-
holti, formaður; Hafsteinn Þorvaldsson, Sel-
fossi, gjaldkeri og Eggert Haukdal, Bergþórs-
hvoli, gjaldkeri.
Innanhússmót H. S. K. að Flúðum
15. apríl 1968
HÁSTÖKK MEÐ ATRENNU:
1. Pálmi Sigfússon, Ingólfi 1,73
2. Bergþór Halldórsson, Vöku 1,73
3. Guðmundur Kr. Jónsson, Selfossi 1,63
4. Helgi Benediktsson, Merkihvoli 1,63
HÁSTÖKK ÁN ATRENNU:
1. Pálmi Sigfússon, Ingólfi 1,54
2. Bergþór Halldórsson, Vöku 1,54
3. Guðmundur Kr. Jónsson, Selfossi 1,44
4. Ólafur Einarsson, Vöku 1,39
Hin efnilega
sundkona,
Guðmunda
Guðmundsdóttir
14
SKINFAXI