Skinfaxi - 01.07.1968, Blaðsíða 4
Við þessum spurningum gefa menn
sjálfsagt ýmis svör: — Þannig var það
í okkar hópi og lái hver okkur, er sér.
Lokasvar okkar varð þó þetta, eftir
nokkrar bollaleggingar: Við verðum
að halda mótið eins og ekkert hefði í
skorizt, þrátt fyrir alla óáran. Þó að
ýmsu kunni að verða ábótavant, hvað
vallaaðstöðu snertir, hlýtur það að
vera hinn stóri vinningur að halda
mótið.
Norðaustan gusturinn, kaldur og
hryssingslegur, lofar engu góðu enn
sem komið er, en við verðum að trúa
því, að dagar hans kunni brátt að verða
taldir í bili. Við skulum vona að svo
verði, og lifa í huganum sólríka og hlýja
daga á 13. landsmótinu á Eiðum.
Landsmót UMFÍ var
haldið að Eiðum árið 1952
Þá var þessi mynd tekin
á áhorfendasvæðinu
Verði annað ofan á, er ekki annað
en taka því án þess að eyða löngum
tíma í kvíða, vikurnar fyrir mót.
Ég vil svo undirstrika það, sem ég
hef verið að reyna að skýra í þessum
línum: Að veðráttan hefur leikið vell-
ina okkar grátt og við væntum skiln-
ings þátttakenda á vanmætti okkar
gagnvart náttúruöflunum. Við vorum
búnir að reikna dæmið á annan veg, en
nú höfum við útkomuna dregna skýr-
um stöfum á jörðina.
Leiðum svo hugann aftur að sól og
sumri.
Eg býð alla, sem sækja okkur heim
á 13. landsmót UMFl að Eiðum, hjart-
anlega velkomna.
4
SKINFAXI