Skinfaxi - 01.07.1968, Blaðsíða 9
að á eftir. Samkomurnar voru vel sótt-
ar, jafnan húsfyllir, þrátt fyrir litla
auglýsingastarfsemi. Það gleðilegasta
í sambandi við samkomurnar var, að
þær fóru ágætlega fram, vín sást ekki
á nokkrum manni á þeim flestum, og
þörf fyrir löggæslu var ekki fyrir hendi.
Má gera ráð fyrir að það hafi lækkað
útgjöld um nær 40 þúsund.
Sveit Árskógshrepps, sem keppti til úrslita
við Dalvíkinga.
Síðasta keppnin fór fram í Sjálf-
stæðishúsinu á Akureyri. Var þess sér-
staklega óskað, að vínbarir hússins
yrðu ekki opnir og urðu forráðamenn
þess góðfúslega við þeirri bón. Þess
varð ekki vart, að samkomugestir,
sem voru nær 400, söknuðu þeirrar
þjónustu sem vínbarir veita.
Höfuðtilgangur UMSE með þessu
skemmtanahaldi var sá, að gefa fólki
á sambandssvæðinu kost á, að njóta
menningarlegra skemmtana, svo og að
afla tekna. Nær helmingur ágóðans,
sem varð um 140 þúsund krónur, renn-
ur til væntanlegs héraðsgagnfræða-
skóla í Eyjafjarðarsýslu.
Þetta mun vera fyrsta spurninga-
keppni sinnar tegundar hér á landi
(milli hreppa), og eitt snjallasta fyrir-
tæki sem UMSE hefir lagt í. — Nú
munu önnur héraðssambönd hafa kom-
ið á sviplíkum keppnum og enn önnur
hugsa til þess.
Dalvíkingar, sem
sigruðu i Hreppa-
keppninni: Tryggvi
Jónsson, Helgi
Þorsteinsson og
Vilhjálmur
Björnsson
SKINFAXI
9