Skinfaxi - 01.07.1968, Page 10
Spurningakeppni
Spurningakeppni HSK lauk laugardag-
inn 20. apríl sl., er lið Umf. Eyfellings
vann lið Umf. Biskupstungna að Flúð-
um.
Sigurvegararnir fá að verðlaunum
ferð á landsmótið að Eiðum, en aðrir
keppendur í spurningakeppninni fengu
bækur, sem Almenna bókafélagið gaf
til keppninnar.
Nærri mun láta að 3300 manns hafi
komið á samkomur þessar í báðum sýsl
unum og hefur sambandið haft af þessu
talsverðar tekjur enda mun ekki af
veita þegar sambandið hefur í jafn
mörg horn að líta og nú er, — lands-
mótið verður kostnaðarsamt og inn-
rétting húss HSK á Selfossi hlýtur að
kosta mikið fé.
Spurningakeppni þessi hefur þótt
takast mjög vel og virðist almenningur
hafa skemmt sér með ágætum, enda
hefur verið talsvert vandað til dag-
skráa á samkomunum.
Alls voru haldnar 10 samkomur.
4 í Rangárvallasýslu og 6 í Árnessýslu.
Tvær íþróttastjörnum, Þuríður Jónsdóttir
HSK og Haukur Ingibergsson HSÞ vöktu at-
hygli fyrir góðan þjóðlagasöng.
Samkomur þessar voru með miklu
meningarsniði. Þar var flutt margs-
konar skemmtiefni: Kórsöngur og
kvartettar, leikþættir. Þá má nefna að
Sveit Umf. Eyfell-
ings, sem sigraði,
frá vinstri:
Sveinbjörn
Ingimundarson,
Yzta Bæli,
Jón Einarsson,
Skógum og
Sigurður
Björgvinsson,
Stóru-Borg.
10
SKINFAXI