Skinfaxi - 01.07.1968, Side 13
Húnavakan hefur nú verið haldin í
20 ár. Sú fyrsta var árið 1948, og síðan
hefur hún verið haldin árlega nema
eitt ár, þegar skemmtanabann var.
I 8 ár hefur Ungmennasamb. Aust-
ur-Húnvetninga gefið út myndarlegt
ársrit, sem ber nafnið „Húnavaka“.
Ritið er hátt á annað hundrað blaðsíð-
ur og vandað að öllum frágangi. I því
er fjölbreytilegt efni, bæði í lausu máli
og bundnu. Þar eru sögulegar frásagnir
og þjóðlegur fróðleikur, smásögur,
kvæði og stökur og fré.tir úr héraðinu.
,,Húnavaka“ er bæði skemmtilegt og
fróðlegt heimildarrit fyrir héraðið, og
það er mikið og gott átak að koma því
út árlega, svo vel sem það er úr garði
gert. Ritstjórn hefur annazt frá upp-
hafi Stefán Á. Jónsson, Kagaðarhóli.
Ársþing USAH var haldið á Blöndu-
ósi 8. júní sl. Skýrslu stjórnarinnar var
dreift fjölritaðri til þingfulltrúa svo og
afrekskrá í frjálsum íþróttum. I skýrsl
unni er rakið starf sambandsins 1967,
m. a. í sambandi við Húnavökuna o. fl.
Iþróttastarf hefur verið talsvert, bæði
í knattspyrnu og frjálsum íþróttum.
Jón Ingi Ingvarsson þjálfaði knatt-
spyrnulið USAH, sem náði góðum ár-
angri í forkeppni 13. landsmóts UMFÍ.
USAH sá um þriggja héraða keppni í
frjálsum íþróttum milli Austur- Hún-
vetninga, Vestur-Húnvetninga og Skag
firðinga. UMSS vann með 178% stig,
USAH hlaut 1121/2 stig og USVH 92
stig. Að venju var haldið frjálsíþrótta-
mót 17. júní og var þá einnig keppt í
knattspyrnu. Héraðsmótið var 14. —
16. júlí, en þátttaka var með lakara
móti. Umf. Bólstaðarhlíðarhrepps vann
kvenna-keppnina, en Umf. Fram,
Skagaströnd vann karlakeppnina.
Niðurstöðutölur á rekstrarreikningi
fyrir 1967 voru kr. 176.0556.- og á efna
hagsreikningi 418.179.-.
I stjórn USAH eru nú: Kristófer
Kristjánsson, Köldukinn, formaður,
Ari H. Einarsson, Blönduósi, Jón Ingi
Ingvarsson, Skagaströnd, Stefán Á.
Jónsson, Kagaðarhóli og Valur Snorra
son, Blönduósi. Formaður íþróttanefnd
ar er Stefán Hafsteinsson, Gunnsteins-
stöðum.
Ungmennasamband
Skagafjarðar
Ungmennasamband Skagafjarðar hélt
49. ársþing sitt í félagsheimilinu Mið-
garði, Varmahlíð, 28. apríl sl. For-
maður UMSS, Guðjón Ingimundarson,
Guðmundur
Guðmundsson
„íþróttamaður
arsins“ í
Skagafirði
flutti starfsskýrslu stjórnarinnar, og
var henni dreift fjölritaðri meðal fund-
armanna. Starfsemi var góð og fjöl-
breytt á árinu 1967, fyrst og fremst á
íþróttasviðinu. Knattspyrnulið sam-
bandsins vann rétt til þátttöku í úr-
slitakeppninni á landsmótinu í sumar
og sömuleiðis kvennalið sambandsins
í handknattleik. Áhugi er líka mikill
fyrir körfuknattleik, og náðu körfu-
SKINFAXI
13