Skinfaxi - 01.07.1968, Qupperneq 15
móts UMFÍ, sem haldið verður á Sauð
árkróki 1971, en Ungmennasamband
Skagafjarðar annast mótið.
I stjórn UMSS voru kosnir: Guðjón
Ingimundarson formaður, Stefán B.
Pedersen, Stefán Guðmundson, Helgi
Rafn Traustason og Árni M. Jónsson.
Héraðssamband
Suður-Þingeyinga
55. ársþing Héraðssambands Suður-
Þingeyinga var haldin 16. júní 1968 í fé
lagsheimilinu í Köldukinn í boði umf.
Gaman og alvara. Mættir voru fulltrú-
ar frá öllum sambandsfélögunum 11 að
tölu, auk gesta sem voru: Gísli Hall-
dórsson forseti ÍSÍ, Stefán Kristjáns-
son formaður SKÍ, Valdimar Óskars-
son stjórnarmaður UMFI, Þóroddur
Jóhannsson framkvæmdarstjóri UMSE
og Sveinn Jónsson formaður UMSE.
Ársþingið var haldið mun seinna en
venja er, og stafar það af vondu tíðar-
fari í vetur og influenzu í vor.
Formaður HSÞ Óskar Ágústsson
setti þingið og skipaði þingforseta Sig-
urð Sigurbjörnsson, Björgum og Þráin
Þórisson, Skútustöðum og fundarritara
Gunnlaug Tr. Gunnarsson, Kast-
hvammi og Eystein Sigurðsson Arnar-
vatni. Þá flutti formaður skýrslu stjórn
ar sambandsins sem lögð var fyrir
þingið prentuð. Ljóst var af skýrslu
stjórnar að starfsemi sambandsins
hafði verið mjög margþætt og um-
fangsmikil. Arngrímur Geirsson gjald
keri las og skýrði reikninga sambands-
ins. Voru niðurstöðutölur rekstrar-
reiknings um 481.000,00 kr. og rekst-
ursafgangur um kr. 38.000,00. Eignir
sambandsins námu um kr. 518.000,00.
Stærstu gjaldaliðir eru til kennslu og
þjálfunar 124.050,- kr. og þátttaka í
mótum 98,344,- en stærstu tekjuliðir
styrkir 100,906,00 kr. og íþróttamót og
skemmtanir 185,605,00 kr.
Eftir matarhlé tóku gestir þingsins
til máls, en að því loknu hófust fram-
söguræður um hin einstöku mál sem
lágu fyrir þinginu. Kl. 6 skiluðu nefnd-
ir störfum og verður nú getið helstu
tillagna sem komu fram:
Gunnar
Kristinsson
einn snjallasti
íþróttamaður
HSÞ
Fundurinn lítur svo á að HSÞ hafi
sízt minni ástæðu en önnur héraðs-
sambönd til að vinna að landgræðslu-
málum og samþykktir að kjósa nefnd
til a ðannast framkvæmdir í því máli
svo fljótt sem verða má.
Ársþing HSÞ samþykkir að komið
verði á spurningakeppni milli
hreppsfélaga á sambandssvæði HSÞ og
verði 3 mönnum falið að sjá um fram-
kvæmd hennar.
Aðalfundur HSÞ leggur til að leitað
verði samstarfs við UMSE um fram-
kvæmd fjölþrautamóta í framtíðinni.
Aðalfundur HSÞ felur stjórn sam-
bandsins að semja reglugerð fyrir bik-
arkeppni unglingaliðs HSÞ og leggur
til að mótið verði haldið 18. ágúst. Síð-
SKINFAXI
15