Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.07.1968, Qupperneq 22

Skinfaxi - 01.07.1968, Qupperneq 22
Verndun islenzkrar náttúru Náttúruverndarnefnd Hins ísl. náttúru- fræðifélags og Æskulýðssamband Is- lands hafa byrjað aðgerðir til verndar íslenzkri náttúru. Náttúruverndarherferðin hófst 26. júní og er áætlað að hún standi yfir þar til 15. september. Uppbygging herferðarinnar er í stór- um dráttum þessi: 1. LJtvarp. Vikulega, þ. e. á laugardögum, verður skotið inn milli dagskrárliða stuttum hvatningarorðum til ferðamanna og annarra vegfarenda, um að fara vel og hirðusamlega um landið. Ennfremur mun einn málsmetandi maður halda stutt ávarp hvern laugardag og flutti dr. Sigurður Þórarinsson jarðfræðing- ur fyrsta ávarpið. 111,5 stig. Emelía Baldursdóttir var stighæst í kvennakeppninni, en Þor- gerður Guðmundsdóttir vann bezta af- rekið, 13,1 sek. í 100 m hlaupi. Sigurð- ur Viðar var stighæstur karla og vann einnig bezta afrekið 11,2 sek. í 100 m hlaupi. Einnig var haldið innanhúss- mót í frjálsum íþróttum, og íþrótta- fólk UMSE keppti á mörgum mótum utan héraðsins. Þrjú knattspyrnumót voru haldin. I héraðsmótinu sigraði Umf Framtíð. Auk þess tók UMSE þátt í forkeppni landsmótsins. I handknattleikskeppni kvenna sigr- aði lið Umf Ársól og Árroðans. Lið UMSE tók þátt í forkeppni landsmóts- ins í handknattleik. I sveitakeppni í skák sigraði sveit Umf Skriðuhrepps, og í Hraðskákmót- inu sigraði Hjörleifur Halldórsson Umf Öxndæla. I Bridgemóti UMSE tóku þátt sex sveitir, eins og í skákmótinu. Sigurvegari varð A-sveit Umf. Svarf- dæla. Skíðamót UMSE var haldið á Dalvík 8.—9. apríl og var þátttaka mikil, yfir 20 keppendur í sumum greinum. Umf Svarfdæla vann stigakeppnina. UMSE fékk hingað til lands úrvals fimleika- flokka karla og kvenna frá Danmörku, og héldu flokkarnir 7 sýningar norðan- lands og tvær í Reykjavík. Margt annað mætti nefna úr starfs- annál UMSE, en það yrði of langt mál upp að telja hér. Framkvæmdastjóri UMSE er nú sem undanfarið hinn góð- kunni íþróttamaður Þóroddur Jó- hannsson. 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.