Skinfaxi - 01.04.1975, Blaðsíða 16
Borðtennis á landsmóti
sem kynningargrein
Fréttamaður Skinfaxa ræddi við Sól-
veigu Sveinbjömsdóttur sem sér um und-
irbúning kynningar á borðtennis á lands-
mótinu.
— Hvemig líður undirbúningi borð-
tennis á landsmóti og hvernig verður
þeirri kynningu háttað?
— Nú sem stendur er bréf á leiðinni
til aðildarsambandanna frá Landsmóts-
nefnd þar sem samböndin em m. a. innt
eftir þátttöku í borðtennis á landsmót-
inu.
— Fá öll aðildarsamböndin að senda
þátttakendur á mótið?
— Já, þegar samböndin hafa tilkynnt
Sólveig: Svein-
björnsdóttur.
þátttöku, þá verður ákveðið hvað hvert
samband má senda marga þátttakendur
í hvem aldursflokk.
— Hvemig verður hagað aldursskipt-
ingu?
— Fyrst 13 ára og yngri, 13 til 15 ára,
15 til 17 ára og 17 ára og eldri ásamt
einum kvennaflokki. Auk þessara flokka
verður einn valinn flokkur sem í verða 8
þátttakendur.
— Hvað áætlar þú að verði margir
þátttakendur í borðtennis á Landsmót-
inu?
-—- Eg giska á að þeir verði í kring-
um 80.
— Hvemig er keppnisaðstaðan á
Akranesi? Hvar fer borðtenniskeppnin
fram?
Aðstaða verður nokkuð góð ef fram-
kvæmdaáætlun við nýja íþróttahúsið
stenst.
— Hvar færð þú borð til keppninnar?
— Því er ósvarað en meiningin er að
fá þau að láni á Reykjavíkursvæðinu.
Við þökkum Sveinu fyrir.
Komungir keppendur munu setja svip sinn
á borðtenniskeppnina á landsmóti UMFÍ.
Ó. Ó.
16
SKINFAXI