Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1980, Page 27

Skinfaxi - 01.08.1980, Page 27
FRÉTTABRÉF Mörg ungmennafélög og héraðssambönd hafa hafið útgáfu á fréttabréfum til að kynna starfsemi sína. Af hálfu UMFI hefur einnig verið lögð áhersla á þetta og aðildarfélögin hvött til að gefa út fréttabréf enda varla völ á betri og ódýrari kynningu á starfseminni. Einnig er Félagsmálaskólinn tilbúinn með námskeið í útgáfu- starfsemi. Flest þessara fréttabréfa berast til skrifstofu UMFÍ. Nýverið barst okkur fréttabréf UÍA sem er 4. blað þessa árgangs. Pað er byggt upp eins og flest hin frétta- bréfin, á stuttum greinum um flesta þætti starfseminn- ar. Við skulum aðeins líta í fréttabréf þeirra austan- manna. Rð liðinni sumorhótíð Sumarhátíð UÍA 1980 fór íram helgina 11.—13. júlí og heppnaðist mjög vel. Ohætt er að segja að allar þær vonir sem bundnar voru við hátíðina hafi ræst og hún staðið undir merkjum sem fjölskylduhá- tíð cnda var þátttaka nú meiri en áður og þegar flest var, voru a.m.k. 3500 manns á svæðinu. Þakka verðurveðurguðunum sitt framtak sem örugglega vó þungt á vogarskálunum. Einnig verður að þakka félögunum, því án þeirra hefði engin Sumarhátíð verið. Sér- stakar þakkir fær þó Súlan Stöðv- arfirði Ivrir glæsilega þáttöku. Eftir þessa Sumarhátíð hefur hreyfingin l'engið mikinn meðvind og þess er kralist að haldið verði ál'ram á sömu braut. Gerum það og reynum að gera enn betur. Rrsþing UÍfl 1980 \ síðasta stjórnarfundi UIA var ákveðið að ársþing UÍA 1980 verði haldið á Borgarfirði dagana 13.— 14. september n.k. Stjórn UÍA vonast eftir mikilli þátttöku og ekkert félag má láta sig vanta. Gert er ráð fyrir að þingfull- trúar gisti og hafa Borgfirðingar skipað sérstaka skemmtinefnd til að sjá um skemmtun fyrir fulltrú- ana. Að gefnu tilefni skal stjórnar- mönnum sérráða á það bent að þeir hal'a allir rétt til að sitja þingið og er mjög æskilegt að þeir geri það. Fró Frjolsíþróttaróði Oldungamót í frjálsum íþrótt- um fór fram sunnudaginn 31. ág- úst að Eiðum kl. 14.00. Keppt var í eftirtöldum greinum: Konur: 100 m hlaup, kringlukast og kúluvarp. Karlar: 100 m hlaup, 800 m hlaup, langstökk, kringlukast og kúlu- varp. Ef einhver hefur óskir um að keppt verði í fleiri greinum er við- komandi beðinn að hafa samband við Helgu Alfreðsdóttur. Fimmtarþraut fór einnig fram að Eiðum sunnudaginn 31. ágúst kl. 14.00. Skráning í bæði öldunga- mótið og fimmtarþrautina fór l'ram á staðnum. €kkert ratleiksmót um verslunarmannahelgino Eins og kunnugt er var ákveðið að ratleiksmót yrði haldið í Hall- ormsstað um verslunarmanna- helgina. Á síðasta stjórnarfundi UIA var málið rætt og sett í nánari athugun. Ekkert ratleiksmót var haldið á vegum UIA um verslunarmanna- helgina. Ástæðurnar voru aðallega tvær. í fyrsta lagi fékkst enginn nógu kunnugur Hallormsstað til að skipuleggja móttð og í öðru lagi var framkvæmdastjórn UÍA það tímabundin að ekki gal'st tími til að undirbúa mótið svo gagn yrði að. Vonandi verður hægt að bæta úr þessu næsta ár. Rusturlandsmót í handknottleik Austurlandsmót í handknatt- leik, utanhúss hefur farið fram á Fáskrúðsfirði. Kcppt var í fjórum llokkum: 3. tlokk kvenna, 2. flokk kvenna, meistarallokk kvenna og meistaraflokk karla. Urslit urðu þau að í 3. flokki kvenna sigraði Umf. Þróttur Neskaupstað, í 2. flokki kvenna sigraði Huginn, í meistarallokki kvenna sigraði SKINFAXI 27

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.