Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1982, Síða 3

Skinfaxi - 01.12.1982, Síða 3
SKINFAXI 6. tbl. —73. árg. — 1982 ÁSKRIFTARVERÐ: 100 kr.árgangurinn. • ÚTGEFANDI: U,ngmennafélag Islands. RITSTJÓRI: Ingólfur A. Steindórsson. RITNEFND: Jón G. Guðbjörnsson, Bergur Torfason, Guðjón Ingimundarson. AFGREIÐSLA SKINFAXA: Skrifstofa UMFÍ Mjölnisholti 14, Reykjavík. Sírru 14317. SETNING OG UMBROT: Leturval sf, Ármúla 36. OFFSETPRENTUN: Prentval, Súðarvogi 7. MEÐAL EFNIS: BI». 23. Sambandsráðsfundur UMFÍ .... 4 Viðtöl við formenn á Sambands- ráðsfundi ...................... 8 75 ára afmælishóf UMFÍ ......... 12 Bikarkeppnin í sundi .......... 20 Viðtal við Bjarna Sigurjónsson. 22 Viðtal við Aðalstein Kristjánsson .. 24 Vísnaþáttur Skinfaxa............ 26 Jóladagskrá ungmennafélaganna .. 29 Vinningaskrá í Landshappdrætti ungmennafélaganna............... 31 Góður félagsskapur.............. 32 FORSÍ ÐUMYNDIN: Forsíðumyndin er afSonju Hreiðarsdólt- ur, UMFN. Hún vann besta afrekið og varð sligahrcsl í sundkeppninni á landsmót- Wu á Akureyri ífyrra. Par setti hún einnig tvö landsmótsmet. Sonja þjálfar nú sundlið l MFN og í bikarkeppninni í 1. deild í sundi nú nýverið héldu Njarðvíkingar seti smu, sem þeir unnu í jyrra. Hér í blaðinu er sagt frá bikarkepþninni 1 sundi, sem fram fór í nóvember bæði í fyrstu og annarri deild. Einnig eru viðtöl við tvo félagsforyslumenn í sundi. í ÁRSLOK Nú fyrir skemmstu var haldinn Sambandsráðsíundur UMFI að Garðaholti í Garðabæ. Þar var mæting fulltrúa gpð og líflegar umræður urðu þar um ýmis mál svo sem 18. Landsmótið sem haldið verður í Keflavík og Njarðvík 1984. Lrlend samskipti, sem aldrei hafa verið umfangsmeiri í starfi UMFÍ en í sumar. Þar bar hæst norræna ungmcnnavikan á Selfossi og heimsókn 40 ungmennafelaga frá V\G í Danmörku er dvöldu hér í hálfan mánuð. Það er ljóst að til crlendra samskipta hefur í ár farið meira fjármagn og meiri tími starfsmanna UMFÍ en áður, þannig að ýmis önnur mál hafa setið á hakanum og fengið minni tíma en æskilegt má teljast, t.d. erindrekstur og útbrciðsla, fjármál og Félagsmálaskólinn svo eitthvað sé nefnt. Það er því spruning hvort hér sé rétt stefnt þegar tillit er tekið til þess aö mjög lítill hluti ungmennafélaga hefur sinnt þessum málum eða látið þau sig varða á einn eða annan hátt. Flnginn má skilja orð mín svo að ég sé talsmaður gegn erlendum samskiptum, þau verðum við að hafa, þó varla meiri en fjármagn og tími starfsfólks levfir. Lins og flestir eflaust vita er UM FI 75 ára á þessu ári. Þess hefur verið minnst á einn og annan hátt á árinu. Þar skal fyrst tiltaka verkefnið Lflum íslenskt er ungmennafélagar hjóluöu kringum landiö í þágu íslenskrar framleiðslu. Svo mikið hefur verið rætt og ritað um þetta verkefni m.a. í Skinfaxa að ég held að þaö sé að bera í bakkafullan lækinn að rita um það langt mál nú, en aðeins minnast á að þarna sýndi ungmennafélagshrcyfingin samtakamátt sinn og kraft með þessu mikla átaki. Afmælisfagnaður UMFI var haldinn í tengslum við Sambandsráðsfund. Þar varsaman kominn stór hópur vaskra félaga, bæði ungra og gamalla forystumanna hreyfingarinnar fyrr og nú. Yfir þessum afmælisfagnaði sveif góður andi, þar sem bæði aldnir og ungir félagsforystumenn hreyfingarinnar báru saman bækur sínar og blésu til nýrrar sóknar ungmennafélagshreyfingarinnar. Þó staða ungmennafélaganna sé sterk á íslandi í dag er aldrei ofmikið gert til að útbreiða þá göfugu hugsjón, störf hennar og stefnu. Því hvet ég alla ungmennafélaga til að herða róðurinn og kynna starfsemina og fá þar með fleiri til starfa í hreyfmguna. Við fískum ekki nema við róum íslandi allt V ________________________________________________________j skinfaxi 3

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.