Skinfaxi - 01.12.1982, Page 4
Pálmi Gíslason formaður Ungmennafélags íslands setur 23. Sambandsráðsfund UMFÍ.
23. Sambandsrððsfundur UMFÍ
Laugardaginn 20. vóvember s.l. var 23. Sambandsráðsfundur
UMFI haldinn í Garðaholti á Alftanesi. Mættir voru fulltrúar frá
flest öllum samböndum og aðildarfélögum UMFÍ. Er þetta besta
mæting á sambandsráðsfund um langan tíma. Þegar fundarmenn
höfðu hresst sig á morgunkaffi og rabbað saman nokkra stund, en
nokkrir höfðu komið um langan veg þá um morguninn, var geng-
ið til dagskrár, sem hófst með setningarávarpi Pálma Gíslasonar
formanns UMFÍ er fer hér á eftir:
Góðir fundargestir.
Eg býð alla fundarmenn vel-
komna til þessa 23. sambandsráðs-
fundar UMFÍ. Fyrir rösku ári var
haldið þing að Kirkjubæjar-
klaustri að loknu velheppnuðu
landsmóti og miklu annaári. Það
hefur oft sýnt sig að árið eftir
landsmót hefur dregið úr starf-
seminni. Það hefur verið slappað
af eftir mikil átök. Arið í ár er þó
undantekning frá þessu. Mikið
hefur verið að ske hjá flestum hér-
aðssamböndum og hjá heildar-
samtökunum er þetta afmælisár
eitt það annasamasta. Erlend
samskipti hafa verið meiri en
nokkru sinni fyrr. Ungmennavika
í 10 daga á Selfossi með 70 þátt-
takendum. Móttaka 40 manna frá
AAG, sem hérdvöldust í 16 daga,
en þar vorum við að endurgjalda
móttöku íþróttahóps er hélt til
Arósa að loknu síðasta landsmóti.
Göngudagur fjölskyldunnar var
til fyrirmyndar í ár með mikilli
þátttöku. Hjá nokkrum héraðs-
samböndum var gengið í hverju
félagi. Hæst ber þó afmælisverk-
efnið „Eílum íslenskt'1. Þessi her-
ferð stóð yfir í 17 daga. Það þurfti
mikinn undirbúning og mikið
skipulag. Nefnd varsett ímálið og
skulu henni færðar þakkir og þó
sérstaklega starfsmanni verkefn-
isins Finni Ingólfssyni, sem sýndi
mikla þrautseigju og dugnað við
undirbúning og framkvæmd.
Barátta ungmennafélaga fyrir
því að fá fólk til að velja íslenska
framleiðslu fremur en innflutta
4
SKINFAXI