Skinfaxi - 01.12.1982, Blaðsíða 8
VIÐTÖL VIÐ FORMENN Á
SAMBANDSRÁÐSFUNDIUMFÍ
Skinfaxi náði tali af nokkrum formönnum héraðssambanda í
fundarhléi á meðan að nefndir störfuðu á Sambandsráðsfundin-
um. Voru þeir fyrst beðnir að segja frá því helsta í starfinu heima í
héraði og síðan voru þeir spurðir hvaða mál þeim finndist athyglis-
verðast á Sambandsráðsfundinum?
Sigurður Viggósson formaður
HHF.
Sumarið 1979 var lialdið héraðs-
mót hér á sambandssvæðinu. Það
var aðalkveikjan að því að Héraðs-
sambandið Hrafnaflóki var end-
urreist vorið 1980 á sameiginleg-
um fundi félaganna á svæðinu. Þá
voru Tálknfirðingar nýbúnir að
stofna félag. Starfsemi sambands-
ins haíði þá legið niðri í að
minnsta kosti 10 ár. A þeim tíma
var aðeins eitt félag starfandi á
svæðinu, félagið á Patreksíirði.
Fyrsta verkefni sambandsins var
að halda héraðsmót í frjálsum
íþróttum. Auk þess höfum við
verið með sundmót og knatt-
spyrnumót.
Segja má að við höfum byrjað á
öfugum enda, því við byrjum á
því að halda mót. Nú sjáum við að
við erum að missa út þessa áhuga-
menn sem unnu að endurreisn-
inni, því menn eldast í þessu.
Aðalmálið hjá okkur í dag er að fá
einhverja til að taka við. Það er
því efst á blaði hjá okkur að þjálfa
upp nýtt fólk og í því sambandi er
fyrirhugað námskeið á vegum Fé-
lagsmálaskóla UMFÍ í vor. í
framhaldi af því eru svo áætluð
sérnámskeið næsta haust.
A veturna hefur verið æíður
körfubolti á Patreksfirði af mikl-
um krafti. Þetta er eini staðurinn
Sigurdur Viggósson.
á svæðinu sem hann erstundaður.
Þeir hafa tekið þátt í Islandsmót-
um í mörgum flokkum. I lýrravet-
ur var sett upp skíðalyfta í fjallinu
milli Patrcksfjarðar og 'I'álkna-
íjarðar og gerum við ráð fyrir að
það verði mjög rnikil aukning á
þátttöku í skíðaíþróttum í vetur.
Þessi lyfta komst ekki upp fyrr en
rétt áður en snjóa leysti í íýrravor,
en þar var örtröð alla daga meðan
hún var opin.
Um þjálfaramál er þaðhelst að
segja að héraðssambandið hefur
ekki ennþá verið með þjálfara á
sínum snærum, en félögin hafa
sjálf’ ráðið sér þjálfara. Félagið á
Tálknafirði hefur verið líflegasta
félagið undanfarin ár. Þeir hafa
haldið uppi þjálfun í sundi og
frjálsum íþróttum og hafa fengið
til þess styrk frá sveitarfélaginu.
Hílddælingar hafa nú í tvö sumur
verið með þjálfara á launum í
knattspyrnu og frjálsum íþrótt-
um, sem félagasamtök á staðnum
hafa styrkt ásamt sveitarfélaginu.
Félagið á Patreksíirði var með
þjálíára í knattspyrnu og frjálsum
íþróttum á fullum launum í sum-
ar og greiddi sveitarfélagið laun
hans að mestu leyti, en það hefur
ekki áður gerst. Þá voru Patreks-
fírðingar með ólaunaðan þjálfara
í sundi í sumar.
Aðspurður um það hvaða mál
Sambandsráðsfundarins væri at-
hyglisverðast, sagði Sigurður að
reglugerð 18. landsmótsins og
umíjöllunin um næsta landsmót
höíðaði mest til sín. Við ætlum
okkur að vera með á því móti,
teljum að við verðum búnir að
undirbúa okkur nóg til að vera
með í baráttunni að einhverju
lcvti. Sigurður sagðist ekki hafa
áður setið Sambandsráðsfund.
Þuríður Jóhannsdóttir formað-
ur UMSB.
Efst á baugi hjá okkur í dag eru
húsnæðismálin. Við höfum aldrei
haft húsnæði fyrir starfsemina, en
við erum nú í þann veginn að
flytja inn í herbergi okkar í
íþróttahúsinu í Borgarnesi. Þar
verður starfsmaður sambandsins
með aðstöðu og þar komutn við til
með að geyma gögn sambandsins
og verðlaunagripi og halda okkar
8
SKINFAXI