Skinfaxi - 01.12.1982, Síða 10
sem komið hefur fram á síðustu
landsmótum í sambandi við þátt-
tökurétt og kærur. Það var kom-
inn tími til að taka á þessu máli til
að koma í veg fyrir misskilning,
eins og viljað hefur brenna við. Þá
vil ég nefna söguritun U MFÍ, sem
hlýtur að teljast stórviðburður,
þar sem reynt verður að safna
saman á einn stað heimildum um
sögu UMFI. Eitt af þeim stóru
málum sem rætt hefur verið um
hér á fundinum, en heíur ekki
fengið þá umfjöllun sem æskilegt
væri, er afhending kennslu-
skýrslna. Það virðist vera að
menn geri sér ekki nægilega grein
fyrir því hve þýðingarmikið það er
að þessum skýrslum sé skilað inn
á réttum tíma. Þetta getur verið
spurning um fjárhagslega af-
komu, að styrkirnir komi á til-
skildum tíma til féalganna.
Dóra Gunnarsdóttir varafor-
maður UIA.
Við höfum reynt að halda úti
mikilli starfsemi fyrir yngstu ald-
urshópana, þ.e. 14 ára og yngri.
Við vorum með farandþjálfara í
sumar, Karenu Erlu Erlingsdótt-
ur, sem aðallega þjálfaði frjálsar
íþróttir og í sumum félögum sá
hún um mest alla þjálfun. Aðal-
viðburður ársins var Sumarhátíð-
in að Eiðum. Börnin sem þátt
taka í þessari hátíð, bíða allt árið
eftir henni. Foreldrar fjölmenna
þangað með börnum sínum. A
sumarhátíðinni síðastliðið sumar
voru um 600 keppendur. Sumar-
hátíðin hefur verið fastur liður í
starfinu hjá okkur í mörg ár og
komin á hana hefð. Þetta er mjög
gleðirík hátíð, sem Austfirðingar
fjölmenna á. Atlavíkurhátíðin,
sem við héldum í sumar, tókst
mjög vel og höfum við hugsað
okkur að halda aftur hátíð í Atla-
vík næsta sumar. Þetta er stór
tekjulind fyrir sambandið, en
Dóra Gunnarsdóttir.
rekstur þess er mjög kostnaðar-
samur. Svo hafa félögin einnig
haft tekjur af Atlavíkurhátíðinni.
Varðandi það sem framundan
er, þá verður mikið að gera hjá
okkur í mótahaldi í vetur. Við er-
um búin að gera mótaskrá alveg
fram í ágúst á næsta ári. Þá verður
í gangi hjá okkur í vetur spurn-
ingakeppni UIA, eins og undan-
farna vetur. Þetta hafa verið
geysilega vinsælar og (jörugar
samkomur.
Athyglisverðasta mál Sam-
bandsráðsfundar, sagði Dóra tví-
mælalaust vera tillögu Sigurjóns
Bjarnasonar um að skipaður verði
starfshópur sem semji tillögu til
úrbóta varðandi kennslustyrki
ríkisins til hreyfingarinnar. Það er
skömm að því hvað við fáum orðið
lítið í okkar hlut og kominn tími til
að farið verði að hrófla eitthvað
við þessu máli. Mér finnst fundur-
inn hafa verið oflangdreginn og of
stuttur tími ætlaður í nefndar-
störf, sagði Dóra. Sérstaklega
fannst Dóru of mikill tími hafa
farið í spjall, þegar mál voru lögð
fyrir fundinn. Sú umræða hefði
betur farið fram í nefndunum.
GÖMUL MERKI
I gegn um tíðina hejur UMFI látib búa til 6 barm-
merki, svo vitað sé til. Prjú ajþessum merkjum eru til í
merkjasafni UMFI. Hin þrjú eru orðin mjög sjaldséð og
hejur UMFI ekki enn lekist að eignast eintak ajþeim.
Ólajur Jónsson í Kóþavogi, sem á mikið merkjasafn,
kom á skrijstoju UMFI um daginn með myndir ajþess-
um merkjum. Er honum hér meðþökkuð hugulsemin, því
mikill Jengur er í því Jyrir UMFI að eiga mynd aj
merkjunum, meðan ekki næst í merkin sjálj.
Skinjaxi birtir hér myndir ajþessum fágœtu merkjum
og beinir því um leið lil lesenda blaðsins hvort þeir viti
um einhvem sem á þessi merki. Haji einhverjir hugmynd
um hvarþessi merkieraðJinna ogjajnjramt hvort þauem
Jol, eru þeir vinsamlega beðnir að senda línu til Ung-
mennajélags Islands, Mjölnisholti 14, Reykjavík eða að
hringja í síma 12546 eða 14317. Væri UMFÍ mikill
Jengur íþví að vita hver afþessum merkjum eru til og hvað
víða. JaJnframt væri mikilvægt ej einhver vissi eitthvað
um sögu þessara merkja, t.d. hver teiknaði þau, hvenær
þau voru búin til og í hve miklu uþþlagi.
10
SKINFAXI