Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1982, Page 12

Skinfaxi - 01.12.1982, Page 12
Hafsteinn Þorvaldsson fyrrverandi formaður UMFÍ flytur hátíðarræðuna. 7 5 ára afmælishóf UMFÍ I framhaldi af 23. Sambandsráðsfundi UMFÍ sem haldinn var x Garðaholti á Álftanesi 20. nóvem- ber s.l., var efnt til samsætis í tilefni af 75 ára afmæli UMFÍ. Afmælishófið var einnig haldið í Garðaholti um kvöldið. Til þessa afmælisfagnaðar hafði verið boðið öllum fundarmönnum Sam- bandsráðsfundarins, fyrrverandi stjómarmönnum UMFÍ, heiðursfélögum UMFI, öllum sem hlotið hafa gullmerki UMFI og nokkrum fleiri velunnurum. Meðal þeirra sem voru í afmælishófinu var Ingvar Gíslason menntamálaráðherra og frú. Við þetta tækifæri sæmdi formaður UMFÍ Þorstein Einarsson fyrrverandi íþróttafulltrúa heiðursfélagakrossi UMFÍ fyrir mikil störf í þágu hreyfingar- innar og ber þar hæst þáttur hans í stjóm landsmótanna. Margar ræður vom fluttar og vom UMFI færðar margar góðar gjafir. Hátíðarræðuna flutti Hafsteinn Þorvaldsson fyrrverandi formaður UMFÍ og fer hún hér á eftir: Hátíðarræða Hafsteins Þorvaldssonar Þegar við nú minnumst 75 ára afmælis Ungmennafélags Is- lands, verður mér í virðingu og þökk hugsað til brautryðjend- anna sem hófu merkið á loft, þeirra manna sem leystu úr læð- ingi þá lífslöngun og athafnaþrá sem einkennt hefur störf og stefnumið ungmennafélagshreyf- ingarinnar alla tíð síðan. Enda þótt fyrirmyndin hafi að forminu til komið frá frændum okkar Norðmönnum, bar hún strax sér-íslenskt yfirbragð, sem á áhrifaríkan hátt höíðaði til ís- lenskrar æsku, enda fóru þar í fylkingarbrjósti þekktir íþrótta- og andans menn, sem áttu auðvelt 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.