Skinfaxi - 01.12.1982, Qupperneq 22
Viðtal við
Bjarna Sigurjónsson
formann Sunddeildar Umf. Selfoss
Nýlega barst okkur í hendur
ársskýrsla Sunddeildar Umí'. Sel-
foss fyrir síðastliðið starísár og í
henni kemur frant að mikið starf
er unnið fyrir utan hefðbundnar
æfingar og mótahald. Mikið starf
er innt afhendi við alls konarfjár-
öflunarstarfsemi. Þá hefur einnig
verið slcgið á léttari strengi í starf-
inu, en bæði var f'arið í leikh ús og í
útilegu í Þórsmörk. Bjarni Sigur-
jónsson er nú að hefja annað
starf'sár sitt sem formaður deild-
arinnar. Ritstjóri Skinfaxa náði
tali af Bjarna að lokinni bikar-
keppninni í sundií 1. deild. Bjarni
er spurður að því, livort hann sé
ánægður með frammistöðu sund-
liðsins í bikarkeppninni?
Eg er ánægður með árangur-
inn, þó ég hcfði viljað að okkur
liefði gengið betur. Við urðum að
vera án Þrastar Ingvarssonar,
landsliðsmanns, en hann veiktist
að kvöldi fyrri keppnisdagsins.
Þetta kostaði okkur að minnsta
kosti annað sætið. Eg er mjög
ánægður með árangur I'ryggva
Helgasonar, sem setti fjögur Is-
landsmet í bringusundi á mótinu.
Hann er að verða einn besti
bringusundsmaður á Norður-
löndum, en hann hef'ur dvalið í
Svíþjóð í velur við nám og sund-
æfingar. Þar er hann undir leið-
sögn sænska landsliðsþjálfarans.
Við setjum nú markið hiklaust á
næstu Ólympíuleika og stefnum
markvisst að því að Tryggvi kom-
ist þangað.
Hvemig ganga fjármálin?
Við erum með árvissa tekju-
stofna. I sundlauginni erum við
með auglýsingaspjöld, sem fyrir-
tæki auglýsa á og greiða fýrir það
ákveðna ársleigu, en þessi spjöld
standa allt árið. Við verðum með
svokallað „5 aura sund“ í febrú-
ar. Þessi fjáröflun er þannig upp-
byggð, að sundfólkið syndir í 10
mínútur eins langt og það getur.
Sundfólkið safnar áheitum hjá al-
menningi, þar sem lof'að er að
greiða 5 aura fyrir hvern metra
sem syntur er á 10 mínútum. Þá
erum við með flöskusöf'nun ef'tir
Bjami Sigurjónsson formaður Sund-
deildar Umf. Selfoss.
áramótin, sem hcfur gefið vel aí
sér. Við sáum um útihátíðahöld-
in 17. júní í sumar sem leið og
höíðum þá jafnframt sælgætis- og
ölsölu, sem við höfðum vel upp úr.
I haust og það sem af er í vetur
höfum við séð um dyravörslu
bæði í Tryggvaskálaog Hótel Sel-
foss. Ungmennafélagið hef'ur haft
með þetta að gera í mörg ár og
hefur útfilutað þessu til deild-
anna. Okkur hef'ur tekist vel að
manna þessa starfsemi með for-
eldrum sundfólksins. Undanfárið
hefur þetta verið tvisvar í viku,
enda hafa verið af þessu ágætar
tekjur.
Hvað er það helsta sem er
framundan?
Við höfum áætlað að fara með
sundfólkið í sumarbúðir í ágúst á
næsta ári, sennilega til Spánar.
Fyrir þremur árum var farið með
sundfólkið í svona sumarbúðir, og
þá til Spánar og gafst það vel. Þeir
sem koma til með að eiga kost a
því að fara með eru þeir sem æfá i
fyrsta og öðrum flokki. Eins og ég
var búinn að tíunda eru ýmsar
fjáraflanir í gangi. Við stefnum að
því að við verðum búin að fjár-
magna þessa ferð, þegar kemur að
henni.
IS
Sundlid HSK í bikarkeppninni.
22
SKINFAXI