Skinfaxi - 01.12.1982, Qupperneq 24
VIÐTAL VIÐ
Aðalstein Kristjánsson
FORMANN SUNDDEILDAR UMFB
Dagana 12.-14. nóv. var Bikar-
keppni SSI í 2. deild haldin í
Sundhöll Hafnarfjarðar. Par var
mætt til leiks sundlið Umf. Bol-
ungarvíkur. Liðið stóð sig frábær-
lega vel, en tókst samt ekki að
sigra, lenti í 2. sæti næsta á eftir
Sundfélagi Hafnaríjarðar. Sund-
lið Umf. Bolungarvíkur er mjög
ungt, en jafnframt mjög sterkt.
Liðið hefur vakið mikla athygli og
segja má að það sé eitt af bestu
félagsliðum landsins í sundi. Rit-
stjóri Skinfaxa notaði tækifæriðog
ræddi við Aðalstein Kristjánsson,
sem verið hefur formaðurdeildar-
innar síðan 1979. Hann er spurð-
ur hvernig aðstaða sé til sund-
æfinga í Bolungarvík?
Tekin var í notkun ný inni-
sundlaug, 16 2/3 m löng, snemma
á árinu 1977. Þá hófst strax sund-
kennsla á vegum skólans, en áður
höíðu börnin verið send á sund-
námskeið til ísafjarðar á vorin.
Síðan hófust fljótlega sundæfing-
ar á vegum UMFB. Frumkvæði
að því höfðu Guðmunda O.
Jónasdóttir og Kristján L.
Möller. Kristján var þá íþrótta-
kennari á staðnum og varð fyrsti
þjálfara liðsins. Guðmunda hef'ur
síðan leit' liðið allan tímann og
verið aðstoðarþjálfari og er í dag
aðalþjálfari. Iþróttakennarar á
staðnum hafa alltaf veirð boðnir
og búnir til að aðstoða við þjálfun
liðsins. Haustið 1980 tók Auðunn
Eiríksson við þjálfun liðsins og
þjálfaði það þar til nú í haust er
hann fór í íþróttakcnnaraskólann.
Adalsteinn Kristjánsson formaður
Sunddeildar UMFB.
Þegar Auðunn tók við liðinu hafði
sundfólkið stundað æfingar í tvö
ár og var því búið að ná undir-
stöðunni. Undir stjórn Auðuns
má segja að liðið hafi náð því að
verða keppnislið, enda var hann
mjög ötull við að senda liðið á tnót
til keppni.
Hver hafa verið helstu
verkefnin?
Fyrsta mótið utan heimahéraðs
sem sundfólkið keppti á var
Landsmótið á Akureyri í fyrra, en
þar lenti liðið í 5. sæti í sund-
keppninni og félagið varð í 10.
sæti í heildarstigakeppninni og
voru þau stig eingöngu fyrir sund
og skák. I bikarkeppninni í fyrra í
2. deild sem var í Sundhöllinni í
Reykjavík, náðum við 3. sætinu.
Við höfum tvisvar tekið þátt í ald-
ursflokkamóti 16 ára og yngri. A
Siglufirði í fyrra urðum við í >•
sæti. Nú í sumar varaldursflokka-
mótið haldið á Akureyri. Þar náð-
um við öðru sætinu, en Sundfélag-
ið Ægir sigraði.
Hvemig standa fjármál-
in?
Ferðakostnaður er geysilega
mikill, því alltaf er um langan veg
að fara þegar farið er á sundmót.
Það er rétt að það komi fram, að
við komum ekki til með að fá hing-
að opinber sundmót, þar sem
sundlaugin okkar er of lítil. Við
höfum verið með ýmsar fjáraflan-
ir. I fyrra úthlutaði félagið sund-
deildinni Landshappdrætti
UMFI. Sala á happdrættismið-
um gekk þá vel. Við höfum verið
með kökubasara. Fyrir viku síðan
vorum við með kökubasar og þá
seldurst kökurnar á 4 mínútum.
Nú erum við að fara af stað með
skyndihappdrætti, þar sem búið
verður að draga áður en sala
hefst, þ.e.a.s. að kaupandi happ-
drættismiðans getur strax séð
hvort hann hefur fengið vinning.
Okkur gengur vel með fjáraflanir,
því velvilji í okkar garð er mikill
hér í Bolungarvík. Sem dæmi um
þann velvilja, sem okkur er sýnd-
ur, get ég nefnt það að í fyrra gaf
faðir einnar sundkonunnar tvö
tonn af rækju, en hann er sjálfur
rækjusjómaður.
Hvað er framundan?
Við ætlum okkur stóran hlut i
24
SKINFAXI