Skinfaxi - 01.04.1983, Blaðsíða 3
SKINFAXI
2. tbl. - 74. árg. -1983
ÁSKRIFTARVERÐ:
200 kr. árgangurinn.
LAUSASÖLUVERÐ:
35 kr. eintakið.
ÚTGEFANDI:
Ungmennajélag Islands.
RITSTJÓRI:
Ingóljur A. Steindórsson.
RITNEFND:
Jón G. Guðbjörnsson,
Hergur Torjason,
Guðjón Ingimundarson.
AFGREIÐSLA SKINFAXA:
Skrijstoja UMFÍ
Mjólnisholti 14, Reykjavík.
Sími 14317.
UMBROT OG FILMUGERÐ
Prentþjónustan hj.
SETNING OG PRENTUN:
Prentsmiðjan Rún sj.
MEÐAL EFNIS: bis.
Fréttir af þingum .............. 4
Vidtal vid Magnús Pór
Sigmundsson .................. 10
18. Landsmót UMFÍ ............. 14
SagaUMFÍ ...................... 16
Frá Félagsmálaskólanum ........ 18
Ungmennafélagið Breiöablik
Islandsmeistari í innanhúss-
knattspymu ................... 20
Fræðslu- og kynnisferð nemenda
á íþróttabraut við Alþýðuskólann
á Eiðum ...................... 23
Kveðja frá UMSK ............... 24
Minning - Póröur Jónsson,
Laufahlíð .................... 25
Frásögn Hermanns Níelssonar,
formanns UÍA ................. 28
Vísnaþáttur Skinfaxa .......... 30
FORSÍ ÐUM YNDIN.
Nú þegar veturinn er á undanhaldi og sumarið
Jramundan Jara margir að huga að jerðaiögum um
hálendið. Margt er að sjá á hálendi okkar Jagra
lands.
Porsíðumyndin er aj/erðatöngum á Valnajökli.
Bergur
Torfason.
Að
taka
afstöðu.
Eitt af megin baráttumálum ungmennafélaganna í upphafi varsjálf-
stæðismálið. Einhverjir telja eflaust að sjálfstæðisbaráttunni sé nú
lokið og sigur í höfn og umræðu þar um því ekki þörf lengur. En er
nú svo? Eg held ekki og ber tvennt til. I fyrsta lagi er baráttu fyrir
frelsi þjóðar aldrei lokið. Því erfiðara er að gæta fengins fjár en afla.
Því er jafn nauðsynlegt og áður að umræður um þjóðfrelsismál falli
aldrei niður svo þjóðin verði ekki andvaralaus og telji fengið frelsi
svo sjálfsagt og eðlilegt að því sé engin hætta búin. Þessu er nó ekki
svo farið. Við þurfum ekki annað en minnast allra þeirra einstakl-
inga og þjóða sem eru svo óralangt frá því að vera frjálsir í frjálsu
landi. I öðru lagi, þá er nú loks að sjá fyrir endann á fjögurra áratuga
starfi stjómarskrámefnda, með framlagningu fmmvarps til stjóm-
skipunarlaga, sem forsætisráðherra lagði fram í þinglok. Fyrst þá er
ný stjómarskrá hefur verið samþykkt af tveimur löggjafaþingum
með kosningum á milli þeirra má segja að lokið verði fullkomlega að
framkvæma sjáfstæðisyfirlýsingu íslendinga frá 1944. Það hafa
nokkuð verið skiptar skoðanir um það innan ungmennafélaganna á
síðari ámm, hvort þau ættu að taka afstöðu til ýmissa mála og
framkvæmda sem þá gjaman em flokkspólitísk. Sumir telja að
ungmennafélögin eigi algjörlega að vera þar utan við og sinna
íþróttum og slíkum málum. Eg held að þetta sé rangt. Ungmenna-
félögin hafa ætíð látið sig varða nær öll þau málefni er frjáls félaga-
samtök geta haft afskipti af og beitt þar áhrifum sínum landi og þjóð
til heilla.
Stjómarskrá er gmndvallarlög, sem mynda eiga ramma um alla
hegðun okkar, hugmyndir og siðgæðisvitund. Hún skal gmnd-
völluð svo vel að henni þurfi ekki að breyta að stuttum tíma liðnum,
samanber að meginhluti núverandi stjómarskrár er um 100 ára. Á
það hefur nokkuð verið deilt að alþingi barði í gegn á stuttum tíma
nokkra breytingu á þessum gmndvallarlögum. Það er hvað varðar
kosningar til alþingis og fjölda þingmanna, án þess að þjóðin öll
fengi þar tækifæri til að segja sitt álit eða um að fjalla að ráði. Slík
Iagabreyting er ekki einkamál þingmanna eða flokkaforystu heldur
viðkemur það hverjum einstakling. Það ríður því á miklu fyrir
framtíð lands og þjóðar að sem flestir reyni að gera sér ljósa grein
fyrir sinni eigin afstöðu. Sú afstaða þarf að myndast með tilliti til
hagsmuna þjóðarinnar allrar, sem samstæðrar heildar, sem vill og
getur lifað góðu lífi af gæðum landsins samhent og einhuga. Því
eiga ungmennafélagar hér verk að vinna að skapa þá samstöðu.
Tökum öll afstöðu. íslandi allt.
SKINFAXl
3