Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1983, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.04.1983, Blaðsíða 4
Fréttir af þingum Þing UMSK. 59. þing UMSK var haldið í Fólkvangi á Kjalamesi þann 5. febrúar síðastliðinn. Þingið sátu alls um 60 manns auk gesta sem vom Hermann Guðmundsson framkvæmda- stjóri ISI, Sveinn Bjömsson forseti ISI, Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri UMFÍ og Pálmi Gíslason formaður UMFÍ. í skýrslu stjómar kom fram að starfið hjá UMSK hefur gengið vel á síðastliðnu ári og fer það ört vaxandi. Það kom fram á þinginu að helstu verkefni framundan hjá sambandinu em undirbúning- ur 18. Landsmóts UMFÍ 1984, starfræksla sumarbúða, um- sókn um landsmót á Varmá auk hefðbundinnar starfsemi sam- bandsins. Fól þingið næstu stjóm að skipa við fyrsta tæki- færi Landsmótsnefnd til undir- búnings 18. Landsmótsins. Einnig var samþykkt að ítreka fyrri umsókn til stjómar UMFÍ að UMSK fái að halda landsmót að Varmá í Mosfellssveit árið 1990. Meðal annarra samþykkta þingsins má nefna áskomn a stjórnvöld þess efnis að leggja aukna áherslu á eflingu íslenskrar framleiðslu og kynningu á henni innan lands sem utan, tillögu um að efna til ráðstefnu um æskulýðs- og íþróttamál í héraðinu, laga- breytingar og margt fleira. A þinginu var tekin upp sú nýbreytni að veita sérstaka viðurkenningu því íþróttafólki innan sambandsins sem skarað hefur framúr á undangengnu starfsári. Viðurkenningin veitist einstökum íþrótta- mönnum eða flokki íþrótta- manna. Að þessu sinni urðu fyrir valinu liðsmenn meistara- flokks kvenna úr Ungmenna- félaginu Breiðabliki. Hlaut liðið að launum vandaðan bikar sem Umf. Stjaman í Garðabæ gaf UMSK á s.l. ári í tilefni af 60 ára afmæli sambandsins. Auk þess hlutu stúlkurnar hver og ein verðlaunapening sem á var letrað afreksmaður 1982. Einnig var aflrentur á þinginu félagsmálaskjöldur UMSK, nú öðru sinni, og hlaut hann Páll Aðalsteinsson fyrr- verandi formaður UMSK. Skjöldurinn er gjöf frá Axel Jónssyni fyrrv. alþingismanni og veitist árlega fyrir vel unnin störf að félagsmálum innan sambandsins. Loks vom þeir Páll Aðal- steinsson og Gunnar Snorrason frjálsíþróttamaður úr Umf- Breiðabliki sæmdir starfsmerki UMFÍ. Kristján Sveinbjömsson formaður UMSK afhendir Rósu Á. Valdemarsdóttur fyrir- liða kvennaliðs Breiðabliks í knattspymu, veglegan bikar fyrir framúrskarandi árangur liðsins. Jón Ingi Ragnarsson formaður Knattspymudeildar Breiðabliks var einnig viðstaddur afhendinguna. 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.