Skinfaxi - 01.04.1983, Qupperneq 5
Fræðslu- og útbreiðslunefnd að störfum á UMSK þinginu.
Þingfulltrúar og gestir þágu
rausnarlegar veitingar gest-
gjafanna sem voru Ungmenna-
félag Kjalnesinga og Ung-
mennafélagið Drengur í Kjós.
Eftirtaldir aðilar voru kosnir í
stjórn sambandsins:
Formaður:
Kristján Sveinbjömsson.
Aðrir í stjóm:
Cuiinar Guðmundsson,
Jóhannes Sveinbjömsson,
Ólafur Magnússon,
Sveinn jóhannsson.
Til vara:
Anna Luise Scliilt,
Kristinn G. Jónsson,
Páll Aðalsteinsson.
Þing UMSB.
61. ársþing UMSB var háð
laugardaginn 19. febrúar í
Borgarnesi.
Agæt mæting var á þinginu,
enda eru 13 félög starfandi
innan sambandsins. Af hálfu
UMFÍ sóttu þingið Pálmi
Gíslason, Sig. Geirdal og jón
Guðbjömsson, en frá ÍSÍ komu
Sveinn Bjömsson og Hermann
Guðmundsson.
Þuríður Jóhannsdóttir flutti
skýrslu stjómar og Þorkell
Fjeldsted skýrði reikninga.
Iþróttastarfið er fyrirferðamikið
í starfi UMSB, en auk þess var
ýmislegt á dagskrá síðasta árs.
UMSB hélt upp á 70 ára afmæli
sitt á árinu og unnið er að út-
gáfu afmælisrits. íris Gronfeldt
var kjörin íþróttamaður Borgar-
fjarðar 1982.
UMSB tók myndarlegan þátt í
Eflum Islenskt og Trimmdegin-
um. Helstu fjáröflunarleiðir
sambandsins á árinu vom
dansleikir um verslunarmanna-
helgina og útgáfa þjónustu-
almanaks.
Ekki verður svo skilið við
skýrsluna að ekki sé minnst á
móta og metaskrá sem henni
fylgir. Þetta er heilmikið verk
unnið af Ingimundi Ingimund-
arsyni og er óneitanlega
heimild þegar fram líða
stundir.
Meðal margra ágætra tillagna
sem þingið samþykkti má
nefna tillögu um að koma á fót
ungmennabúðum og heimild
til stjómar til að ráða starfs-
mann.
Landsmótsnefnd sem þegar
er komin til starfa lagði fram sín
mál á þinginu og er greinilegt
að UMSB ætlar sér stóran hlut á
næsta Landsmóti og verða þar
með bæði fjölmennt og harð-
snúið lið.
A þinginu var Gísli Halldórs-
son sæmdur starfsmerki UMFÍ.
Þuríður Jóhannsdóttir gaf
ekki kost á sér í formennsku
næsta starfsár og stjómar-
mennirnir Bjami Guðmunds-
son og Pétur Diðriksson báðust
undan endurkosningu. Stjóm
UMSB er þannig skipuð nú:
Formaður:
Þórir Jónsson, Reykliolti.
Aðrir:
Þorkell Fjeldsted, Ferjukoti.
Birgir Guðmundsson, Borgamesi.
Þuríður Jóhannsdóttir, Jaðri.
Þárólfur Sveinsson, Ferjubakka.
Við færum þeim sem nú viku
úr stjórn bestu þakkir fyrir gott
samstarf og bjóðum nýja menn
velkomna til starfa.
SKINFAXI
5