Skinfaxi - 01.04.1983, Page 7
Þing HSK
Héraðsþing HSK var haldið í
Gunnarshólma A-Landeyjum
helgina 26. og 27. febrúar s.l.
Þingið sóttu fulltrúar frá 18
ungmennafélögum auk nokk-
urra gesta. Frá hálfu UMFÍ sátu
þingið þeir Diðrik Haraldsson
og Sigurður Geirdal. í skýrslum
s.l. árs kom fram að mikill
þróttur er í íþróttastarfinu og
greinilega rekið öflugt ung-
lingastarf á þeim vettvangi hjá
sambandinu og félögunum.
Einnig var mikill hugur í
mönnum að koma áfram hús-
byggingu sambandsins og
samþykktu félögin m.a. að
leggja fram fé til byggingar-
innar sem nemur 25 krónum af
hverjum félagsmanni. Utgáfa
fréttabréfs hófst á árinu og
komu út 10 bréf sem dreift er til
samstarfsaðila og velunnara
sambandsins. Þá voru reknar
sumarbúðir s.l. sumarog erþað
fastur liður í starfi sam-
bandsins.
Margar tillögur lágu fyrir
þinginu, flestar um íþróttamál,
en einnig um húsmál, fjármál
og félagsmál.
Að loknum þingstörfum á
laugardaginn hófust nefndar-
störf og lauk þeim að mestu þá
um kvöldið.
Kvöldvaka var haldin um
kvöldið á vegum HSK og
heimafélagsins UMF Dags-
brúnar. Bar þar helst til tíðinda
að sýnt var hálfunnið prufu-
eintak af kvikmynd Marteins
Sigurgeirssonar sem tekin var á
Landsmótinu á Selfossi 1978.
Einnig fór fram keppni um einn
Ein þingnefndin ad störfum á HSK þinginu.
eftirsóttasta verðlaunagrip
HSK, en það er eldgömul tré-
sleif sem fannst í ferð HSK
manna vestur á fjörðum. Sigur-
vegari að þessu sinni var
Sigurður Eggertsson Umf.
Þórsmörk og mun hann því
velja greinar og stjóma næstu
sleifarkeppni HSK, að sjálf-
sögðu með hæfilegu sleifarlagi.
Daginn eftir hófst svo af-
greiðsla mála. Fátt eitt skal nú
nefnt. Samþykkt var að koma á
skólakeppni í víðavangs-
hlaupum og reglur um starfs-
menn á íþróttamótum. Stuðn-
ingur við þá íþróttamenn sam-
bandsins sem sett hafa markið á
Ólympíuleikana 1984 og m.fl.
um íþróttamál.
f>á má nefna tillögur um land-
vernd og fegrun umhverfis
félagsheimila, um eflingu
félagsmálaskólans og hvatn-
ingu til ungmennafélaga að
gefa meiri gaum að því mikla
starfi sem félögin vinni í leik-
list, en þess má geta að leiklistin
er fastur liður í vetrarstarfi
margra félaga. Guðmundur Kr.
Jónsson var endurkjörinn for-
maður HSK.
íþróttamadur HSK 1982 var kosinn
Vésteinn Hafsteinsson. Hér taka
foreldrar hans, Hafsteinn og Hildur,
við verðlaununum í fjarveru hans.
SKINFAXl
7