Skinfaxi - 01.04.1983, Page 8
Þing UMSS.
63. þing UMSS var háð á
Sauðárkróki sunnudaginn 20.
mars sl. Mættir af hálfu UMFÍ
voru þeir Sigurður Geirdal,
Diðrik Haraldsson og Guðjón
Ingimundarson.
Jóhann Jakobsson formaður
UMSS setti þingið og flutti
skýrslu stjómar, einnig fluttu
fulltrúar félaganna stuttar
skýrslur um störf þeirra.
Stjóm UMSS hélt 11 bókaða
fundi á starfsárinu og auk þess
vom haldnir tveir formanna-
fundir. Tvö félög í UMSS áttu
merkisafmæli á árinu, Umf.
Fram varð 75 ára og Tindastóll
einnig. Umf. Tindastóll gaf út
vandað afmælisrit í tilefni
afmælisins. A þessu ári eiga
einnig tvö félög UMSS merkis-
afmæli Umf. Geisli verður 85
ára og Umf. Hegri verður 75 ára.
Af þessu sést vel hve ung-
mennafélagshreyfingin í
Skagafirði stendur á gömlum
Ófeigur Gestsson, sveitarstjóri á
Hofsósi, tók virkan þátt í þingstörfum
á UMSS þinginu. Ófeigur var um árabil
formaður UMSB.
merg. En auk þeirra félaga sem
hér vom nefnd er Umf. Framför
stofnað 1906 og Æskan 1905.
Að flestu leyti virðist síðasta
starfsár hafa verið gott hjá
UMSS. Þeir stóðu vel að sam-
eiginlegum verkefnum s.s.
landshappdrættinu, göngu-
deginum og Eflum íslenskt.
Mikið var um mótahald og þátt-
töku í mótum utan héraðs,
heldur myndarlegt skólamót í
frjálsum íþróttum með þátttöku
7 skóla í fjómm mótum alls.
Starfsmannahald hefur verið
laust í reipunum hjá UMSS, en
Gunnar Sigurðsson einn vara-
stjómarmanna hefur séð um
daglegan rekstur og skrifstofu
sambandsins síðan í október sl.
haust, en þar er um ólaunað
starf að ræða. UMSS veitir
árlega viðurkenningu fyrir
besta afrek ársins í frjálsum
íþróttum og velur einnig
íþróttamann ársins. Gísli
Sigurðsson Umf. Glóðafeyki
hlaut báðar þessar viður-
kenningar fyrir árið 1982.
Sigurður og Diðrik lentu í illviðri og
ófærð á leið sinni á þing UMSS. Hér er
Sigurður að moka Subaruinn í gegn um
einn skaflinn.
Grettisbikarinn í sundi hlaut
Hannes Valbergsson Umf.
Fljótamanna. Fjölmargar
tillögur og mál lágu fyrir
þinginu m.a. var farið vandlega
yfir lög UMSS og þeim breytt í
nokkmm atriðum, einkum
hvað skipulagsmál varðar.
Samþykkt var viðamikil móta-
skrá næsta árs, þjálfaranám-
skeið í sundi og frjálsum, að
Sauðárkróksskóli varð sigurvegari í skólamóti UMSS í frjálsum íþróttum. Hér eru
sigurvegaramir með farandbikarinn sem keppt var um, en ÍSÍ gaf UMSS bikarinn á
70 ára afmæli sambandsins. Keppt skal sex sinnum um bikarinn.
8
SKINFAXI