Skinfaxi - 01.04.1983, Qupperneq 10
Viðtal við
MagnÚS ÞÓr Sigmundsson, tónlistarmann.
Tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmundsson frá Njarðvtk er ungmennafélögum að góðu
kunnur sem frjálsíþróttamaður. Hann keppti t spjótkasti á landsmótunum á Laugarvatni 1965
og Sauðárkróki 1971 og var t keppnisliði UMFÍ, sem fór til Danmerkur 1971.
Tilefni þessa viðtals er ekki að rifja upp íþróttaferil Magnúsar heldur að fræðast örlítið um
hans nýjasta framtak sem tónlistarmanns, en það er útgáfa plötunnar „Draumur aldamóta-
bamsins".
Boðskapur hennar er eins og best verður á kosið til að túlka hugsjónir ungmennafélags-
hreyfingarinnar í Ijóði og tónum. Það væri þvíþarft verk efvið ungmettnafélagargætum stuðlað
að því að þessi boðskapur heyrðist sem víðast og ekki síst að sem flestir ungmennafélagar
kynntust honum. Hér á eftirfer stutt spjall við Magnús sem ætlað er að fræða lesendur Skinfaxa
örlítið um þetta framtak hans.
Við byrjum á því að spyrja
Magtiús hvað hafi drifið á daga
hans frá því að við sáutti hatm
síðast keppa á landstnóti árið
1971?
Tónlistaráhuginn hafði verið
að þróast með mér frá 16 ára
aldri, en þá eignaðist ég gítar.
Eg æfði mig mikið á þessum
árum, en ég hafði einnig
mikinn áhuga á íþróttunum.
Mér fannst ég verða að velja á
milli og varð það úr að ég valdi
tónlistina, en hætti í íþrótt-
unum. Um þetta leyti kynntist
ég Jóhanni Helgasyni tón-
listarmanni og æfðum við
mikið saman.
Fyrstu plötuna gerði ég svo
árið 1972 ásamt Jóhanni og
kölluðum við hana ,,Magnús og
Jóhann". Síðan byrjaði ég að
spila í hljómsveitum, var meðal
annars í hljómsveitinni
,,Change“. Ég var í Englandi í 5
ár og vann fyrir hljómplötu-
fyrirtæki. A þessum árum var
ég ekki þjóðrækinn. Ég hlustaði
mikið á herstöðvarútvarpið í
Keflavík. Það var ekki fyrr en ég
kom til Englands að ég fór að
hafa áhuga á íslandi. Þá fór ég
að lesa íslenskar bækur og fór
að semja tónlist við kvæði eftir
Kristján frá Djúpalæk.
Fyrstu íslensku plötuna vinn
ég árið 1978, ,,Börn og dagar",
þar sem textamir vom eftir
Kristján frá Djúpalæk. Þetta
opnaði fyrir mér nýjan sjón-
deildarhring í tónlist. Næsta
hljómplata sem ég gaf út heitir
,,Álfar". Hún kom út 1979.
Hvað varð til þess að þú satttdir
þessa tónlist og gafst út þessa
plötu?
Upphafið að því er það, að ég
var að vinna fyrir útgáfufyrir-
tækið Æskuna og þar var mér
gefin ljóðabók sem heitir ,,Ný
ljóð". Ljóðabókin kom út árið
1971 og er eftir Margréti Jóns-
dóttur, sem lengi var ritstjóri
Æskunnar. Margrét lést árið
1971. Ég las þessi Ijóð öðm
hvoru í heilt ár og eftir því sem
ég las þau oftar virkuðu þau
sterkar og sterkar á mig. Þegar
ég fór að bera þessi Ijóð saman
við hugsanaganginn í þjóð-
félaginu í dag, fannst mér þau
hafa meiri og meiri tilgang.
Fyrsta ljóðið sem ég samdi
tónlist við var Draumur alda-
mótabarnsins, en þar segir að
vona verði að upp vaxi sterkir
menn sem bölinu bægi frá og
leiði mannkynið til frelsis og
friðar. Nú sðan samdi ég hvert
lagið aföðm. Ég varað vinnaþá
á Landspítala íslands, geðdeild
og ég spilaði þessi lög mikið
fyrir sjúklingana. Ég reyndi
þegar ég var að semja lögin að
10
SKINFAXI