Skinfaxi - 01.04.1983, Síða 17
Hverjir eru stærstu kaflamir?
Sá stærsti er kaflinn um
landsmót UMFÍ, enda hafa
landsmótin verið fjöregg
hreyfingarinnar frá því að þau
voru endurvakin í Haukadal
1940. í kaflanum reyni ég að
skýra frá upphafi þeirra, vexti
og viðgangi gegnum tíðina
ásamt með frásögn af fram-
kvæmd þeirra hvers um sig og
leita jafnframt fanga í lifandi
lýsingar blaða á hverjum tíma.
Um aðra kafla er erfitt að
segja, en kaflamir um Skinfaxa,
Þrastaskóg, Félagsmálaskólann
og Erlend samskipti em allir
viðamiklir kaflar og svo er
reyndar um flesta kaflana að
segja. Endanleg heildar blað-
síðutala liggur ekki fyrir, en
verður þó varla undir 500 bls.
Hvenær má svo vænta útgáfu?
Það er kannski ekki mitt að
svara því, það verður stjóm
UMFI sem tekur endanlega
ákvörðun um hvenær ráðist
skal í prentunina. Það veit ég þó
að bugur er fyrir því að bókin
komi út fyrir haustið og frá
minni hálfu, hvað varðar efnið
sjálft, ætti prentunin að geta
hafist í apríl.
Vestur
Húnvetningar
Eflið eigin peningastofnun.
Sparisjóðurinn annast öll venjuleg
sparisjóðsviðskipti.
Ávaxtar sparifé yðar hæstu vöxtum.
Afgreiðslutími mánudaga -föstudaga
kl. 11 - 12 og kl. 13 - 16.30.
Munið landsþjónustu sparisjóða.
^PARISIÓBUR ^ESIUR- iJ|úNAVATNSSÝSLU
SÍMI 95-1310 & 1410 - HVAMMSTANGA
SKINFAXI
17