Skinfaxi - 01.04.1983, Page 21
Árangur yngri flokkanna
hefur ekki verið eins góður og
vonir hafa verið bundnar við.
Nú er unnið þróttmikið starf til
að gera breytingu á því. Er það
starf strax farið að skila árangri,
því í fyrra sýndi 6. flokkurinn
frábæran árangur. Þetta starf
hefur aðallega fólgist í því að
við höfum reynt að fá fleiri
virka félaga til að vinna að
þessum málum og hefur það
tekist vel.
Hvemig leggst sumarið íþig?
Við horfum björtum augum
til sumarsins í sumar með alla
okkar flokka. Starfið er öflugt og
vonum við að árangurinn verði
samkvæmt því. Okkur hefur
tekist vel að ráða þjálfara og
væntum góðs samstarfs við þá
svo og góðs árangurs á knatt-
spymuvellinum. Við skorum á
foreldra og forráðamenn að vera
nú virkilega með í starfinu,
aðstoða við hið mikla uppeldis-
starf sem unnið er og að koma
einnig á völlinn til að hvetja
liðin til dáða. Það er alltaf
gaman að sigra, en aðalatriðið
er að vera með í drengilegri
keppni.
Stjóm Knattspymudeildar UBK
er þannig skipuð:
Jón Ingi Ragnarsson
fomiadur
Jón Gudlaugur Magnússon
varaformaöur
Amór Amórsson
ritari
Kristján Þorvaldz
gjaldkeri
Sæmundur R. Ágústsson
spjaldskrárritari
Asgeir Friðþjófsson
meðstjómandi
Rúnar Skarphéðinsson
íslandsmeistarar Breiðabliks í innanhússknattspymu 1983.
skinfaxi
meðstjómandi
IS
21