Skinfaxi - 01.04.1983, Page 24
Kveðja frá UMSK
GUÐBJÖRN GUÐMUNDSSON
F. 23.11.1894
D. 13.31983
Nú er látinn Guðbjöm
Guðmundsson fyrsti formaður
Ungmennasambands Kjalar-
nesþings. Það var haustið 1922
að fulltrúar á svæðinu frá
Sandgerði til Akraness komu
saman og stofnuðu héraðs-
samband er hlaut nafnið Ung-
mennasamband Kjalames-
þings.
Aðalhvatamaður að þessari
stofnun var Guðbjöm heitinn
og var hann að sjálfsögðu
kjörinn fyrsti formaður sam-
bandsins. Næstu tíu árin stýrði
Guðbjöm sambandinu og á
þeim tíma gerði hann það að
mikilvægum þætti í íþrótta- og
ungmennafélagsstarfinu á fyrr-
greindu svæði.
F»að var meðal annars fyrir for-
göngu Guðbjöms að ung-
mennafélagar víða að af
landinu lögðu fram sjálf-
boðavinnu við lagfæringar á
F>ingvöllum fyrir alþingishátíð-
ina 1930. F>ar kom einnig fram
dansflokkur úr röðum ung-
mennafélaga innan UMSK og
sýndi vikivaka, en það var liður
í hátíðadagskránni. Margt fleira
mætti telja sem tengt er
minningu Guðbjöms Guð-
mundssonar og starfa hans i
þágu ungmennafélagshreyf'
ingarinnar, en það yrði of langt
mál ef rúmast ætti í stuttri
minningargrein.
Nýlega hefur birst viðtal við
Guðbjöm í Skinfaxa, svo og í 60
ára afmælisriti Ungmennasam-
bands Kjalamesþings þar sem
nánar segir frá lífi og störfum
hans í þágu ungmennafélags-
hreyfingarinnar.
Um leið og við kveðjum Guð-
bjöm Guðmundsson viljum við
þakka honum vel unnin störf í
þáguUMSK á bemskuámm
sambandsins og sendum
ættingjum hans og venslafólki
innilegar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjómar UMSK■
Kristján Sveinbjömsson
formaður.
24
SKINFAXI