Skinfaxi - 01.04.1983, Síða 26
mikið fyrir hana. Ég held að þessi
laug hafi verið önnur yfirbyggða
sundlaugin á landinu, sú fyrsta var
á Laugum. Þórður var fulltrúi síns
félags á aðalfundum S.Þ.U. og
H.S.Þ. langa lengi (ég held hann
hafi setið fleiri fundi en nokkur
annar ungmennafélagi á sam-
bandssvæðinu). Þórður sat í stjóm
S.Þ.U., var auk þess í fjölda nefnda
og ráða innan H.S.Þ. Sat mörg
ársþing U.M.F.Í. vinsæll, tillögu-
góður og víðsýnn. Störf hans tengd
ungmennafélögunum voru miklu
fleiri og margþættari en hér er hægt
að gera grein fyrir. En það vinnur
enginn eins lengi og eins margþætt
störf fyrir neinn félagsskap eins og
Þórður vann fyrir ungmenna-
félögin, sem ekki hefur ánægju af
því, en hana hafði Þórður sannar-
lega af öllum þessum störfum.
Stjóm H.S.Þ. sýndi honum
vinsemd og virðingu á ýmsan hátt,
hann var heiðursfélagi þess, og á
sextugs afmæli hans færði það
honum vandaða bókagjöf.
Hér að framan hefur verið getið
um þátttöku og störf Þórðar að
málefnum ungmennafélaga, en
hann vann að félagsmálum á fleiri
sviðum. Sem góður ungmenna-
félagi stundaði hann íþróttir, sund,
glímur og skíðagöngur, hann var
enginn afreksmaður þar, en félags-
leg þátttaka var aðalatriðið. Söngur
og tónlist var mikil í Reykjahverfi
um árabil, þar starfaði lengi ágætur
karlakór, Þórður söng þar um 30 ár,
það var þreytandi og tímafrekt,
meðan alltaf var farið gangandi,
(ekki erfiðara fyrir Þórð en aðra).
Þegar kórinn hætti störfum vegna
brottflutnings margra söngmanna,
þá fór Þórður að syngja í kirkjukór
Grenjaðarstaðarsóknar og söng þar
um 20 ár eða fram um sjötugt. Hann
átti lengst á æfingar, en vantaði
sjaldan, mörg síðustu árin keyrði
frændi hans, Jón Frímann hann í
bíl. Söngurinn veitti Þórði mikinn
unað og lífsfyllingu, og sá félags-
skapur sem honum fylgdi. Mörg ár
spilaði Þórður brids í keppnis-
sveitum, honum var félagsskapur
nauðsynlegur.
I Þingeyjarsýslu hefur Iengi
tíðkast tvíbýli og fleirbýli á jörðum,
meira en annarsstaðar að því talið
er. 1928 ætlaði S.Þ.U. að stofna ný-
býlasjóð fyrir sýsluna. Það er óvíst
að þetta hefði nokkum tíma orðið
það sem því var ætlað að verða og af
þessu varð ekki (en sýnir stórhug)
en margir ungmennafélagar hafa
byggt nýbýli í Þingeyjarsýslu, þar á
meðal Þórður. Hann byggði ný-
býlið Laufahlíð 1938, úr landi
Brekknakots, nyrst í landinu við
hver sem þar er, notaði hverahitann
til suðu og hitunar á húsinu og var
hús hans eitt af fyrstu húsum hér í
sýslu þar sem jarðhitinn var
notaður á þennan hátt.
Þórður bjó svo þama einbúi, en
einangraðist ekki frá umheimin-
um, eins og sýnt er hér að framan,
sem þó vill oft verða með þá sem
búa einir. Þórður átti stórt vandað
og vel mað farið bókasafn, einnig
mikinn fjölda ljósmynda, því hann
var einn af fyrstu mönnum hér um
slóðir sem fór að taka smámyndir
þær sem nú em svo algengar. Hann
fór að skrifa dagbók 9 ára gamall.
Þórður ræktaði sína jörð og sinn
bústofn, átti fallegt og afurðagott
sauðfé. Hann undi glaður við sitt að
því sem best er vitað. Við barm
brekkunnar, þar sem mörg og
fjölgandi laufblöð spretta hvert vor.
Kunn er sagan um norska skáldið
sem bar fræ í vösum sínum og sáði
því þar sem hann fór um. Góðir
menn bera með sér fræ í breytni
sinni og sá þeim í sínu umhverfi,
árangurinn fer eftir þeim jarðvegi
sem þau falla í, það er því nauð-
synlegt að hafa hann sem bestan.
Ungmennafélögin hafa verið jarð-
vegsbætandi frá fyrstu tíð og em
það enn.
Ungmennafélögin í Þingeyjar-
sýslu stofnuðu með sér samband
31. október 1914, sem hlaut nafnið
Samband Þingeygskra ungmenna-
félaga, skammstafað S.Þ.U. síðar
var nafni þess breytt í Héraðs-
samband Suður-Þingeyinga,
skammstafað H.S.Þ., stefnuskrá þó
hin sama þessa getið hér til
skýringar fyrir þá sem ekki þekkja
til.
Þegar H.S.Þ. var fimmtugt var
ákveðið að minnast þess myndar-
lega, meðal annars með því að gefa
út afmælisrit, þar sem getið væri
helstu verkefna þess og einnig
ágrip af sögu þeirra félaga sem i
sambandinu höfðu verið. Það var
vitanlegt í upphafi að þetta mund)
verða umfangsmikið og seinunnið
verk, en um hitt gat enginn vitað
hvað það varð tímafrekt og sein-
unnið. Það skipti því miklu máli að
fá góðan mann til að taka að sér
ritstjómina. Ég man ekki til að það
væri leitað til annars en Þórðar, um
ritstjórn verksins, svo sjáfsagður
þótti hann til þess, það er að
minnsta kosti víst að það var hann.
Formaður H.S.Þ. sagði ,,að allir
yrðu að gera það sem Þórður segði
þeim". Það held ég að hafi verið
gert enda erfitt að óhlýðnast slíkum
húsbónda.
Þórður tók menn með sér í rit-
nefndina, þeir unnu vel, a.m.k.
nokkuð vel. Annar þeirra var æfður
og ágætur rithöfundur og mikill
dugnaðarmaður að hverju sem
hann gekk. Samvinna ritnefndar-
innar var góð og minnist hún
samstarfsins með ánægju. Ritnefnd
sá um allt sem við kom H.S.Þ., en
félögin um efni úr þeim, þó þama
ynnu margir og vel, þá var ekki
alltaf ,,nóg að hringja, svo kemur
það". Stundum þurfti að tví-
hringja, en allt kom að lokum, sem
koma átti og alltaf var Þórður jafn
þolinmóður og ekki verið að skrifa
tímann sem í þetta fór.
26
SKINFAXI