Skinfaxi - 01.04.1983, Blaðsíða 29
Nemendur íþróttabrautar Eiöaskóla ásamt kennara sínum Hermanni Níelssyni.
Meö þeim á myndinni er Siguröur Geirdal framkvæmdastjóri UMFÍ.
að læra að skipuleggja og halda
mót í sínum félögum. Þess
vegna hafa þau fengið það
verkefni að skipuleggja nokkur
mót hér í skólanum, þar sem
þau alveg frá fyrstu stundu
byrja að auglýsa mótið og
undirbúa það og framkvæma
alveg sjálf.
Við erum nú í náms- og
kynnisferð hér í höfuðborg-
inni, til að kynnast starfi UMFÍ
og ISI. Einnig erum við búin að
fara í heimsókn í íþrótta-
kennaraskólann að Laugar-
vatni. Við verðum í fimm daga í
þessari ferð. Við erum nú þegar
búin að aka um Reykjavík með
íþróttafulltrúa Reykjavíkur-
borgar og skoða íþróttamann-
virki borgarinnar og fræðast
um sögu íþróttamannvirkja-
gerðar þar. Við höfum fengið að
fylgjast með æfingum hjá fyrstu
deildar liðum í knattleikjum, til
dæmis vorum við á æfingu hjá
körfuknattleiksliði ÍR og sáum
þar mjög áhugaverðan þjálfara
að störfum, en þetta er amerísk-
ur þjálfari og þykir einn sá besti
sem komið hefur hingað til
lands. Við erum búin að fara í
heimsókn í Armúlaskóla, sem
er með fjölmennustu íþrótta-
braut á landinu. Þá erum við
búin að heimsækja skrifstofu
Iþróttasambands Islands og fá
þar yfirlit yfir sögu, starf og
tilgang sambandsins. í leiðinni
litum við inn hjá KSÍ og KKÍ.
Við eigum eftir að skoða
líkamsræktarstöðvar og kynna
okkur starfsemi þeirra. Við
endum þessa ferð með því að
heimsækja Menntamálaráðu-
neytið og fáum þar yfirlit hjá
íþróttafulltrúa- og æskulýðs-
fulltrúa ríkisins um hlutverk
ráðuneytisins, sem fer með
íþróttamál í landinu. Síðast en
ekki síst vil ég taka fram, að við
byrjuðum á því að heimsækja
UMFÍ þegar við komum til
borgarinnar og fengum þá strax
hjá Sigurði Geirdal, fram-
kvæmdastjóra samtakanna,
greinargóða lýsingu á starfi,
uppbyggingu og sögu UMFÍ.
Við höfum gist hér í húsnæði
UMFÍ og haft hér alla okkar
aðstöðu á meðan við höfum
dvalið hér og hefur aðbúnaður
verið góður. Fyrir það viljum
við þakka. Þessi ferð tel ég að
hafi verið nauðsynlegur hlutur
fyrir væntanlega leiðbeinendur
í íþróttum og félagsforystufólk
og hjálpi til að gera þessa nem-
endur fullfæra til að gegna því
hlutverki sem við erum að
mennta þá til.
Til áskrifenda
Með fyrsta tölublaði í ár fylgdi áskriftarseðill, þar sem óskað er
eftir því við áskrifendur að þeir útvegi að minnsta kosti einn nýjan
áskrifanda og sendi síðan seðilinn til Skinfaxa.
Þessir áskriftarseðlar eru einnig nokkurs konar happdrættis-
miðar fyrir þá sem senda þá inn, því dregið verður úr þeim sem
koma til baka. Getið er um hverjir vinningarnir eru á áskriftar-
seðlinum.
Áskrifandi góðnr.
Mikilvægt er að sem flestir taki þátt í þessari áskriftarsöfnun og
stuðli þannig að aukinni útbreiðslu og betri hag blaðsins. Skila-
frestur hefur verið framlengdur til 15. maí n.k. Ritstjóri.
SKINFAXI
29