Skinfaxi - 01.06.1983, Qupperneq 5
Þing UMSE.
Frá þingi UMSE.
Ársþing UMSE var haldið í
Hrafnagilsskóla 9. og 10. apríl.
Á þinginu var lagt fram vandað
ársrit um starfsemi sambands-
ins árin 1981 og 82. í ritinu er
starfsskýrsla sambandsins fyrir
baeði árin, skýrslur frá starfi
félaganna, skrá yfir bestu frjáls-
íþróttaafrek unnin á þessum
tveimur árum, afrekaskrá
UMSE í frjálsum íþróttum og
fleira er í ritinu. Á þinginu voru
einnig lagðir fram reikningar
sambandsins og endanlegt
uppgjör á 17. landsmótinu.
Mæting þingfulltrúa var
rnjög góð og voru fulltrúar frá
öllum aðildarfélögunum.
Þingforsetar voru kosnir Oskar
Gunnarsson og Daníel Bjöms-
son, en þingritarar Víkingur
Guðmundsson, Sveinn Sig-
mundsson og Hannes Gunn-
laugsson.
Gestir þingsins mættu seinni
daginn, en fyrri daginn vom
þeir á þingi hjá HSÞ. Frá UMFÍ
voru mættir Skúli Oddsson og
Ingólfur A. Steindórsson og frá
ISÍ þeir Sveinn Bjömsson og Jon
Ármann Héðinsson.
Á þinginu var samþykkt
reglugerð fyrir Framkvæmda-
sjóð UMSE, en stofnfé hans er
hagnaður af 17. landsmótinu.
Þá vom gerðar samþykktir um
að vinna betur að félagsmála-
fræðslu, að ráðinn verði fram-
kvæmdastjóri, áskomn um að
hraðað verði uppbyggingu
í'þróttamannvirkja og margar
viðamiklar samþykktir um
íþróttastarfið.
f kaffisamsæti í lok þingsins
fóru fram verðlaunaafhend-
ingar. íþróttamaður UMSE 1982
var Sigurður Matthíasson,
Umf. Svarfdæla. Sjóvábikarinn
var afhentur fyrir flest stig
■ unnin á mótum sambandsins
og hlaut hann Umf. Reynir.
Félagsmálabikarinn fékk að
þessu sinni Skíðafélag Dal-
víkur.
Aðalfundur UMFN.
Aðalfundur UMFN var hald-
inn í félagsheimilinu Stapa
fimmtudaginn 2. júní. Fundur-
inn var haldinn með sama sniði
og undanfarin ár, farið var yfir
skýrslu stjórnar og reikninga og
að því loknu voru teknar fyrir
skýrslur hinna ýmsu deilda
innan UMFN.
íþróttamaður UMFN 1982 var
kosinn Eðvarð Þ. Eðvarðsson
sundmaður, en hann stóð sig
Skúli Oddsson sæmdi Vil-
hjálm Bjömsson starfsmerki
UMFÍ, en Vilhjálmur hefur um
árabil verið varaformaður
UMSE. Hann baðst nú undan
endurkjöri í stjóm.
Gísli Pálsson var endurkjör-
inn formaður sambandsins.
IS
mjög vel á sl. ári og setti mörg ný
íslandsmet og er því vel að
þessum titli kominn. Var
honum afhentur skjöldur til
geymslu í eitt ár ásamt bikar og
verðlaunapeningi til eignar.
Miklar umræður urðu um
Landsmót UMFÍ sem haldið
verður í Keflavík og Njarðvík á
næsta ári.
Oddgeir Karlsson, formaður,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs,
en hann hefur verið formaður í
þrjú ár. Formaður var kosinn
Jón Halldórsson.
SKINFAXI
5