Skinfaxi - 01.06.1983, Page 15
Sundbikarinn á Hvammstanga
afhentur í fyrsta skipti.
Fimm efstu í keppninni um sundbikarinn talið frá vinstri:
Hrafnhildur, Sigurbjörg, Björgvin, Guðbjörg og Gunnar.
íþróttamadur USVH 1982.
Á vígsludegi Sundlaugar
Hvammstanga sl. haust, af-
henti Guðjón Ingimundarson
varaformaður UMFÍ Sundlaug
Hvammstanga bikar að gjöf frá
UMFI. I reglugerð segir m.a. að
um hann skal keppt á sund-
mótum í Sundlaug Hvamms-
tanga, næstu tíu árin. Keppnis-
grein er 100 m skriðsund karla
og kvenna og hlýtur sá kepp-
andi bikarinn sem bestum
árangri nær samkvæmt alþjóða
stigatöflu í sundi á almanaks-
árinu. Ungmennasambandið
hélt tvö mót síðastliðið haust
sem voru Norðurlandsmeist-
aramót 1982 sem haldið var í
samvinnu við USAH og Æsku-
sund 1982, sem er keppni milli
USAH, USVH og UMSB í ald-
ursflokkum 14 ára og yngri.
Sunnudaginn 13. febrúar sl. var
bikarinn afhentur og hlaut
hann Gunnar Sveinsson til
varðveislu.
Árangurfimm efstu þátttakenda varsem
hér segir:
1. Gunnar Sveinsson
Konnáki 1.25,6 mtn 192 stig
2. Guðbjörg Ragnarsdóttir
Gretti 1.38,5 — 172 —
3. Sigurbjörg Jóhannesd.
Gretti 1.42,9 — 151 —
4. Björgvin Þorsteinsson
Konnáki 1.33,6 — 147 —
5. Hrafnhildur Brynjólfsd.
Konnáki 1.52,8 — 115 —
Guðrún Magnúsdóttir, íþrótta-
maður USVH 1982, er félagi í
Umf. Víði. Hún hefur sýnt
miklar framfarir á undanföm-
um ámm og þó sérstaklega á
síðastliðnu ári. Hún setti þá
héraðsmet í kringlukasti og er
mjög nærri metinu í kúluvarpi.
Hún keppti fyrst á héraðsmóti
16 ára og hefur sigrað í kringlu-
kasti á undanfömum þremur
héraðsmótum. Guðrún er
tvítug og starfar í Sparisjóði V.
Húnavatnssýslu, Hvamms-
tanga. IS
Guðrún Magnúsdóttir.
SKINFAXI
15