Skinfaxi - 01.06.1983, Page 8
skipa nú: Geir Þorsteinsson
Hvöt, Asmundur Gíslason
Mána, Björn Júlíusson Sindra,
Páll Helgason Val, Lúsía Guð-
mundsdóttir Val. Framkvæmd-
astjóri og þjálfari USÚ er Svava
Arnórsdóttir og ferðast hún á
milli aðildarfélaganna og þjálfar
ungt og mjög efnilegt íþróttafólk
USÚ af mikilli röggsemi.
SO
Þing HVÍ.
69. héraðsþing HVÍ var
haldið á Flateyri 29. maí.
Mæting á þingið var sæmileg.
Pó sést að nokkur deyfð er yfir
einstaka félagi. Þingið gekk
bæði fljótt og vel. Alyktanir
voru margar og góðar og báru
svip af starfi síðastliðins árs.
Hilmar Pálsson var ráðinn
framkvæmdastjóri sambands-
ins frá miðjum maí og fram í lok
ágúst. Helstu verkefni sumars-
ins eru unglingamót HVÍ, 3 að
tölu, héraðsmót 9. - 10. júlí að
Núpi o.g sumarbúðir að Núpi
25. júní - 7. júlí í tvennu lagi.
Allsherjamefnd að störfum á þingi HVÍ.
Ákveðið var að hefja vallar-
framkvæmdir að Núpi í sumar
og leggja töluverða áherslu á
það. Einnig var ákveðið að
reyna að taka þátt í sem flestum
mótum utan héraðs. Stjórn HVI
var endurkjörin svo og vara-
stjórn, að einni breytingu und-
anskilinni, nýr varaformaður
var kjörinn, Anna Bjarnadóttir.
HP
Þing USVS.
14. sambandsþing USVS var
háð á Kirkjubæjarklaustri 30.
apríl sl. Vigfús Helgason for-
maður USVS setti þingið og
flutti skýrslu stjórnar sem
einnig var fjölrituð í gögnum
þingfulltrúa.
Starf USVS var að mörgu leyti
gott á sl. starfsári og óvenju
fjölbreytt, mörg mót voru haldin
á vegum sambandsins og það
annaðist 3ju deildar keppni FRÍ.
Þá stóð USVS vel að framkvæmd
göngudags, Eflum íslenskt,
trimmdags og öðrum slíkum
sameiginlegum verkefnum. Pá
rná nefna að leiklistin er vaxandi
þáttur í starfi félaga USVS og svo
mætti lengi telja. Framkvæmda-
stjóri USVS sl. sumar var Arnar
Bjarnason. Eitt nýtt félag bættist
í starfið hjá USVS á sl. ári, en
það var Umf. Meðallendinga, en
starf þess hafði legið niðri um
árabil.
Á þingið mættu fulltrúar frá
fjórum félögum alls um 20 full-
trúar og gengu þingstörf vel,
undir öruggri stjórn Kjartans
Magnússonar.
Frá nefndum komu svo mál til
umfjöllunar og afgreiðslu s.s.
landsmótsmál, en þingið kaus
nefnd til að annast undirbúning
í næsta landsmóti og ætlar USVS
að auka verulega hlut sinn frá
síðasta móti og stefnir nú að
þátttöku í 6 keppnisgreinum.
Allsherjarnefnd flutti tillögur
um kynningar og fræðslustarf
um leiklist í héraðinu, urn
Skinfaxa, göngudaginn ofl. Pá
voru íþróttir, þátttaka í mótum
og mótaskrá auðvitað stórþáttur
í störfum þingsins, en öll þessi
mál tókst að leiða til lykta með
mestu prýði.
Emil Hjartar rifjar upp gamlar minningar.
Hann á 30 ára keppnisafmæli á næsta
héraðsmóti HVÍ.
8
SKINFAXI