Skinfaxi - 01.06.1983, Page 21
Heimsókn í íþróttakennaraskólann
á Laugarvatni.
Þriðjudaginn 3. maí fór undirritaður ásamt Skúla Oddssyni austur að Laugarvatni til að
kynna starfsemi UMFÍ fyrir nemendum íþróttakennaraskólans. Skólastjórinn, Ami Guð-
mundsson, tók á móti okkur félögunum. í umræðum viðÁma komfram að nemendurem teknir
inn ískólann annað hvert ár ogsömuleiðis útskrifaðir annað hvertár. Nemendumir sem nú em í
skólanum em að Ijúka sínum fyrrí vetrí. Þeir em 50 talsins og telur Ámi það vera of margt
miðað við það húsnæði og starfslið sem fyrír er. Nemendumir vom nýbúnir í skríflegum prófum,
en sá háttur hefur veríð tekinn upp í seinni tíð að Ijúka að mestu prófum í bóklegum greinum
snemma og nota voríð meira í verklegargreinar.
Við kynntum fyrir nemendunum starfsemi UMFÍ og svömðum spumingum þeirra um þau
atríði sem þau vildu fá skýríngar á. Margir nemendanna em ungmennafélagar víðs vegar að af
landinu og kunnugir starfi ungmennafélaganna.
Við notuðum tækifæríð og ræddum við fjóra nemendur ogfer hér á eftir það helsta sem fram
kom í viðtölum við þau. IngólfurA. Steindórsson.
Erla Gunnarsdóttir,
Selfossi.
Erla er stúdent frá Laugar-
vatni. Hún er félagi í Umf.
Selfoss og hefur starfað þar
bæði með frjálsíþrótta- og
sunddeildinni.
Erla hefur verið keppandi á
þremur síðustu landsmótum
bæði í sundi og frjálsum
íþróttum. Hennarbestu greinar
í frjálsum eru millivegalengda-
hlaupin og í sundi er besta
greinin hennar flugsund. Hún
varð í 2. sæti í 100 metra
flugsundi á landsmótinu á
Akureyri. Hún segir að mark-
miðið hin seinni ár sé ekki að ná
sérstökum afreksárangri í
íþróttum heldur að kynnast
sem flestum greinum íþrótta og
hér er besti staðurinn til þess.
Hún sagðist hafa ákveðið þegar
hún var mjög ung að reyna að
komast í íþróttakennaraskól-
ann og áhuginn dofnaði ekkert
þegar hún varð fullorðin, enda
segist hún vera mjög ánægð að
hafa fengið skólavist. Erlu líkar
mjög vel í skólanum, umhverfið
er skemmtilegt og gefur mikla
möguleika til útivistar. Hún
segist vera farin að líta á
Laugarvatn sem sitt annað
heimili, þar sem þetta er fimmti
veturinn hennar á staðnum.
Erla er búin að fá starf sem
leiðbeinandi við íþróttamið-
stöðina á Selfossi í sumar. Hún
stefnir að því að starfa við
íþróttakennslu í framtíðinni og
segist vona að hún fái starf við
það þegar hún lýkur skóla.
Mér finnst ómetanlegt að
hafa farið að stunda íþróttir og
þar með lent í þeim félagsskap
sem er í kring um íþróttastarfið.
Það sem heldur manni að þeim
félagsskap, er að alltaf er eitt-
hvað til að keppa að, segir Erla
að lokum.
IS
■
SKINFAXI
21