Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1983, Page 22

Skinfaxi - 01.06.1983, Page 22
Helga Kristín Unnarsdóttir, Eskifirði. Helga er stúdent frá Mennta- skólanum á Egilsstöðum. Hún er félagi í Austra og hefur stundað frjálsar íþróttir, sund og handknattleik. Helga keppti í sundi á landsmótinu á Akra- nesi 1975. Hún hefur leikið handknattleik með Austra og m.a. keppti hún í íslandsmóti utanhúss árið 1977 og urðu þá í þriðja sæti. Síðan árið 1978 hefur Helga eingöngu æft frjáls- ar íþróttir og keppt í þeim fyrir UÍA og vakið athygli fyrir góðan árangur. Hennar aðal greinar eru kúluvarp, þar sem hún hefur lengst kastað 12,22 m og kringlukast, en kringlunni hefur hún kastað 37,66 m. Þetta hvorttveggja eru héraðsmet, enda er Helga í fremstu röð kastara á landinu. Aðspurð segist Helga ekki æfa spjótkast, en keppir í því þegar UIA þarf á því að halda. Síðan Helga fór að stunda íþróttir, hefur hún alltaf stefnt að því að komast í íþrótta- kennaraskólann. Ahuginn hefur aukist með hverju árinu, eftir því sem hún stundaði lengur íþróttir. Meðan hún var í M.E. ákvað hún að reyna að fá sér sumarstarf við íþrótta- kennslu til að komast að því hvort það hentaði henni. ,,Ég fékk sumarstarf hjá Umf- Hrafnkeli Freysgoða á Breið- dalsvík við frjálsíþróttaþjálfun og leikjanámskeið fyrir böm. Ég hef mikla ánægju af að starfa við þetta." segir Helga. Helga kann vel við sig í skól- anum, en hún hafði ímyndað sér að námið yrði öðmvísi en það er. Hér fær maður góða undirstöðumenntun til að geta síðar miðlað öðmm. Helga er búin að fá starf í sumar hjá Austra við frjáls- íþróttaþjálfun. Hún stefnir að því að geta æft upp á Egils- stöðum í sumar undir leiðsögn Hreins Halldórssonar og Helgu Alfreðsdóttur. Helga segist vera mjög þakklát nöfnu sinrii Alfreðsdóttur fyrir leiðbein- ingu og annan stuðning á undanfömum ámm. /S Guðmundur Sigurðsson, Ólafsfirði. Guðmundur var í Mennta- skólanum á Akureyri áður en hann kom í ÍKÍ. Hann er félagi í Umf. Reyni á Árskógsströnd. Guðmundur æfði knattspymu og lék með Leiftri á Ólafsfirði þar til árið 1980 að hann fór að æfa frjálsar íþróttir. Síðan hefur hann æft sem millivegalengd- arhlaupari og vakið athygli í þeim greinum fyrir góðan árangur. Hann stefnir nú að því að æfa langstökk og þrístökk sem aðalgreinar. Á innanhússmeistaramótinu í vetur sigraði hann í þrístökki, stökk 14,54 m og varð fjórði í langstökki, stökk 6.99 m. Guðmundur er annars mjög fjölhæfur frjálsíþróttamaður, hann sigraði m.a. í níu greinum auk boðhlaupa á héraðsmóti UMSE síðastliðið sumar. Guðmundur segist hafa haft áhuga á að fara í ÍKÍ þegar hann var yngri, en orðið afhuga því í menntaskóla. í fyrravetur var hann fimm mánuði í Banda- ríkjunum og fékk þá áhugann aftur og sótti um skólann. Hann segir skólann vera mjög líkan því sem hann hafi reynt að gera sér í hugarlund. Guðmundur stefnir að því að æfa áfram frjálsar íþróttir og bæta árangur sinn frá því sem hann nú er. Hann er ákveðinn í því að reyna að fá starf við íþróttakennslu og þjálfun eftir að hann hefur lokið skólanum. í sumar verður Guðmundur starfsmaður hjá UMSS og verður þar m.a. þjálfari í frjálsum íþróttum og sundi. IS 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.