Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1983, Qupperneq 24

Skinfaxi - 01.06.1983, Qupperneq 24
Svava Amórsdóttir, framkvæmdastjóri USÚ tekin tali. Skinfaxi hitti nýlega Svövu Amórsdóttur, framkvæmda- stjóra og frjálsíþróttaþjálfara USÚ og bað hana að segjafrá því helsta sem er framundan hjá sambandinu og hvemig starfi hennar verður háttað í sumar. Ég verö með 11 æfingar á viku í félögunum, þ.e. að það verða 2 æfingar hjá hverju félagi, nema Umf. Oræfa, þar verður ein æfing á viku. Sjöunda félagið í sambandinu er Golfklúbbur Hafnar, sem eðli málsins sam- kvæmt er ekki með frjálsar íþróttir á stefnuskrá. Þessu starfi fylgir mikill akstur, en ég hef skipulagt starfið þannig að það er mjög hagkvæmt. Ég gisti t.d. hjá systur minni á Hala í Suðursveit í 2 nætur í hverri viku til að hafa þetta sem hag- kvæmast. Arsþing USU verður laugar- daginn 11. júní og þar verður mótaskrá sumarsins ákveðin. Það kemur í minn hlut að stjóma undirbúningi móta í sumar. Ég reikna með að öll félögin á sambandssvæðinu verði með göngur á göngudaginn. Undan- farið hefur verið unnið að út- gáfu afmælisrits, en sambandið varð 50 ára á sl. ári. Rit þetta verður í bókarformi og er það væntanlegt úr prentun fljótlega. Á sumrin höfum við gefið út fréttabréf, sem við höfum sent inn á hvert heimili á sambands- svæðinu. Nú er uppi hugmynd um það að USU fái pláss í vikublaði sem gefið er út á Höfn og hefur verið gefið út í nokkra mánuði. Við emm búin að fá leyfi fyrir 2 dansleikjum í sumar, sem ég reikna með að við nýtum okkur til að reyna að hressa upp á fjárhaginn. Við höfum undanfarið verið að afla fjár með fisksölu. Við kaupum fiskinn beint úr bátnum og keyrum út um sveitir og seljum hann þar. Þetta hefur gefist vel, fólk verið ánægt að fá glænýjan fisk og við haft nokkum hagnað Það nýjasta frá DUPLO fyrir böm frá 3ja mán. LEGO 24 SKINFAXJ

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.