Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1986, Side 4

Skinfaxi - 01.04.1986, Side 4
"Hef aldrei stundað íþróttir" Spjallað við Helga Seljan alþingismann Texti og myndir. Guðmundur Gíslason Eins og þeir vita sem fylgst hafa með starfi ungmennafélagshreyfingarinnar í gegnum árin, þá er og hefur leiklist verið stór þáttur í starfi þeirra. Einn þeirra fjölmörgu sem tekið hafa þátt í þeirri starfsemi í sinni heimabyggð er Helgi Seljan alþingismaður. Hann hefur leikið í mörgum leikritum bæði með ungmennafélaginu og svo leikfélagi Reyðarfjarðar, en Helgi á einmitt heima á Reyðarfirði. Til þess að fræðast nánar um leikferil hans og svo viðhorftil ungmennafélagshreyfingarinnar, ræddi ég stuttlega við hann fyrir skömmu. - Hefurðu lagt stund á íþróttir? Nei það hef ég ekki gert. Nema þá sem unglingur, þá gerði ég allt sem ég gat til að þjálfa mig í hlaupum og stökkum og öðru slíku. En almennar íþróttir hef ég aldrei stundað. Ég fékk alveg nóg að hlaupa þann tíma er ég fékkst við búskap, en ég hef verið í því alveg fram til síðustu ára. í dag stunda ég engar íþróttir, það er helst að ég geng en því miður geri ég alltof lítið af því. - Þú hefur þá verið í ungmenr.a- félaginu? Já, ég var bara félagi eins og svo margir þama heima. En ég starfaði eftir því sem ég var tilkallaður. - Ertu ennþá félagi í Umf. Val? Já það vona ég, og það hlýtur eiginlega að vera því það er svo stutt síðan ég var rukkaður um félagsgjaldið. - Þú komst eitthvað nálægt leiklist, var það ekki? Jú! En að mestu var það á vegum leikfélagsins. En að vísu voru það ungmennafélagið og kirkjukórinn sem urðu kveikjan að leikfélaginu heima. Þau settu upp sameiginlega árið 1959 leikritið Delerium Bubonis, og það varð til þess að vekja upp áhuga á leiklist á Reyðarfirði, sem hafði ekki verið stunduð fram að þeim tíma. Upp úr þessu varð svo til Leikfélag Reyðar- fjarðar sem starfaði mikið þá, og starfar ennþá. - Lékstu mikið? Já! Ég var með í flestum leikritum fram til 1970. Ég gæti trúað að þau hafi verið 8 talsins. Við vorum með verk af öllu tagi bæði innlend og svo þýdd erlend verk. - Hvert er efdrminnilegasta hlutverkið ? Ætli það sé ekki fyrsta hlutverkið, sem var forstjórinn í Delerium Bubonis, en eldraunin er alltaf eftirminnilegust og skemmtilegust. Annað hlutverk sem ég kunni ákaflega vel að meta var Andrés ofskomi í "Allra meina bót", þá var ég svo horaður að ég gekk inn í hlutverkið alveg fullskapaður. - Manstu eftir einhverjum skemmti- legum atvikum úr leiklistinni? Jú, það er sjálfsagt hægt að tína saman ýmislegt í sambandi við það. Þvi atviki sem ég man einna best eftir úr þessu, er sú skelfing sem greip um sig í einu leikriti. Þannig var að það átti að fara fram mikið uppgjör í fjölskyldu milli hjóna og barna við matborðið. Og er allir voru sestir og farið að nálgast uppgjörið stóð þá ungi maðurinn í fjölskyldunni upp, en það var kannski aðalatriðið að hann væri með í uppgjörinu því hann var svona uppreisnarmaðurinn í öllu saman, og segir "Verði ykkur að góðu" og labbar síðan út. En þessa setningu átti hann að segja heilum 5 blaðsíðum síðar. Þannig að uppgjörið fór aldrei fram við matborðið, og við hin sátum eftir eins og illa gerðir hlutir. Eftir þetta botnuðu áhorfendur ekkert í leikritinu og öllum þeim miklu átökum sem fóru fram eftir þetta, og kannski ekki nema von því þau áttu að fara fram 5 bls. fyrr. Þetta er eitthvert það aleftirminnilegast úr þessu. "kom þá inn á sviðið á vitlausum tíma" - Eitthvað fleira sem þú manst eftir í þessu sambandi? Ég hef aðeins einu sinni komið inn á sviðið á röngum tímapunkti, og var bæði mín sök og þeirra á sviðinu. Þannig var að ég átti að gæta alls velsæmis í leikridnu, og koma inn á sviðið og spyrja fólkið þar hvað það væri eiginlega að aðhafast, en það átti 4 Skinfaxi 2. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.