Skinfaxi - 01.04.1986, Page 7
Knellan
á Eskifirði
Textí: Rósa Björg Jónsdóttir Myndir: Eiríkur Kristjánsson
Knellan, hvað er nú það? Það er von að menn spyrji, en til að
upplýsa menn um það þá er Knellan afdrep fyrir unglinga í 6-9 bekk
á Eskifirði og er til húsa íkjallara gamla skólahússins á staðnum.
Bæjarstjóm úthlutaði félagsmálaráði Eskifjarðarþessu húsnæði þegar
skólinn flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði á síðasta ári. Um leið og
félagsmálaráð hafði fengið þetta húsnæði til umráða var hafist handa
við að gera það í stand fyrir félagsmiðstöð, og voru unglingamir
nyög áhugasamir og duglegir við að gera þetta sem glæsilegast og
best úr garði. Voru geymslur og bílskúrar margra heimila svo til
breinsaðirþví margtfannstþarsem mátti nota íKnellunni.
Starfsemin hófst svo með dansi, borðtennis, bobbi, pílukasti, skák,
hljómsveitaræfingum og fleiru. Til að fræðast nánar um Knelluna þá
skrifaði Rósa Björg Jónsdóttir nemandi í 8. bekk Grunnskóla
Eskifjarðar stutta grein um það sem gert er í Knellunni, og fer hún
hér á eftir.
22. febrúar var félagsmiðstöðin okkar
tekin í notkun, eftir eins mánaðar vinnu
við að andlitslyfta staðnum. Þar tókst
okkur að gera drauminn um athvarf fyrir
unglinga að veruleika. Knellan heitir
eftir íbúðarhúsi og verslun sem stóð
þama í Klifinu ffam á miðja öldina.
Við opnun voru til 2 borðtennisborð,
fótboltaspil og nokkur töfl. En núna
erum við búin að safna með frjálsum
framlögum fyrir skáktölvu og
ballskákborði (sem okkur var gefið
nokkuð í , og gátum því notað hluta
Peninganna til að kaupa hljómkerfi til
að auka tónlistaráhuga unglinga). Núna
starfar Knelluhljómsveit sem heitir
Appolon. Hana skipa: Helgi Georgsson
söngur og hljómborð, Halldór Svansson
§ítar, Óskar Jónsson trommur og Elvar
Rúnarsson söngur og bassi.
Knellan er opin frá kl. 17-19 alla daga
nema föstudaga, en þá em diskótek og er
oft alveg feikna stuð (með rándýru
ljósadóti). Við lánum síðan skólanum
staðinn einu sinni í mánuði til að halda
skóladiskótek fyrir 6-10 ára, 11-13 ára
og 14-16 ára. Aðgangseyrir að
Knellunni er enginn, en ágóði af
sælgætissölunni er notaður til kaupa á
ýmsum leiktækjum.
Þegar við vissum að við ættum að
skrifa um Knelluna í Skinfaxa fórum
við á stúfana og spurðum nokkra krakka
um álit þeirra á staðnum. Hér koma
nokkur svör:
"Mér persónulega finnst þetta þrælgóð
félagsmiðstöð, þó sérstaklega
borðtennisið og það mætti vera
borðtennismót á næstunni eins og í
fyrra"
Þetta hafði ein stúlka að segja. Heyrum
álit næsta.
"Knellan er frábær!! Ég kæmist ekki af
án hennar, maður myndi drepast yfir
skólabókunum og uppvaskinu, maður
kemst yfirleitt í gott skap að koma
hingað. En það mættu fleiri sækja
staðinn á kvöldin, það sést greinilega
hvaða áhrif hann hefur og ef Knellan
hætti myndu allir krakkamir þyrpast í
hópum á sjoppuna AFTUR".
Og síðasta manneskjan sagði:
"Ballskákin er best, hún hefur mikið
batnað síðan við fengum nýja borðið.
Þessi félagsmiðstöð hefur mikið bætt
staðinn og mér finnst miklu
skemmtilegra að búa hér síðan hún
kom".
Það er auðheyrt að krakkamir eru
ánægðir yfir félagsmiðstöðinni.
Við Knelluna eru 2 fastráðnir
starfsmenn þeir Guðmann og Þórhallur,
sem varla geta sest niður fyrir annríki.
Þessi félagsmiðstöð á þeim mikið að
þakka. Við gætum ekki fengið betri
umsjónarmenn. Þá vinna 8 krakkar við
hana líka, tveir plötusnúðar þau Þómnn
Hrefna og Óskar, fjórir afgreiðslumenn í
sjoppunni þau Rósa Björg, Helgi,
Björgvin og Fjóla og svo tveir ritstjórar
til málamynda, þeir Jón Símon og
Jóhann (en á næsta ári ætlum við að
gefa út blað).
Ef Knellan væri ekki þá væri þetta
dauður bær.
Lengi lifi KNELLAN OKKAR!!
Rósa Björg Jónsdóttir nemandi í 8. bekk
7
Skinfaxi 2. tbl. 1986