Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1986, Page 8

Skinfaxi - 01.04.1986, Page 8
"Lét hann æfa í sturtu" Spjallað við Atla Eðvaldsson knattspymumann Texti og myndir: Guðmundur Gíslason Það hefur lengi tíðkast á íslandi að fara í víking til annarra landa, en nú á seinni öldum ekki til að gera strandhögg að fornum sið heldur gera það gott á ýmsum sviðum eins og í tónlist og svo íþróttum. í dag eigum við íslendingar marga íþróttamenn sem búa á erlendri grund og keppa með liðum þar í hinum ýmsu íþróttagreinum, þó eru flestir í knattspyrnu og handknattleik. Einn þeirra er knattspyrnumaðurinn Atli Eðvaldsson sem er fyrsti íslendingurinn sem spilaði í V-Þýsku Bundesligunni, hann hefurleikið með þremur liðum á þeim sex árum sem hann hefur verið í Þýskalandi. Ritstjóri Skinfaxa heimsótti Atla og fjölskyldu nú fyrir skömmu þar sem þau búa í Dusseldorf og spjallaði stuttlega við hann um knattspymuferil hans. - Hvenær byrjaðirðu að stunda íþróttir? Það má segja að ég hafi fæðst inni í þær, því bæði pabbi og mamma voru mjög mikið í íþróttum og svo var Búbbi bróðir í Val. Þannig að það kom ekkert annað til greina en að ég færi í íþróttimar. - Gekkstu þá strax í Val? Nei! þegar við fluttum í Miðtúnið gekk ég í Ármann og var með þeim í eitt og hálft ár, ég held ég hafi verið um 11 ára. Síðan fór ég í Val þegar ég var kominn upp í 4. fl. og var með þeim þangað til ég fór hingað út. - Þú vannst marga titla með Val íyngri flokkunum. Já! yfirleitt unnum við íslandsmótið þegar ég var á seinna ári í hverjum flokk. En við unnum nú flest mót á þessum árum því við vorum með mjög gott lið gegnum alla yngri flokkana. í því voru m.a. Guðmundur Þorbjömsson, Albert Guðmundsson, Pétur Ormslev og svo náttúrlega ég. Þannig að þetta var mjög sigursælt lið og mjög sterkt, því þessir sem ég nefndi áðan hafa allir farið í atvinnumennsku um lengri eða skemmri tíma. - Hvenær knýrðu svo dyra hjá mfl. ? Sumarið 1973 er ég var á seinna ári í 3. fl. unnum við öll mót hér heima bæði innan húss og utan, og svo alþjóðlegt mót í Danmörku. Svo árið eftir er ég var kominn upp í 2. fl. tók Youri Ilitchev okkur nokkra inni í hópinn hjá mfl. og við Gummi Þorbjörns komum inná í fyrsta leik á móti KR. - Var ekki fyrsta snerting þín við boltann íleik með mfl. eftirminnileg? Jú heldur betur því ég skoraði með þrumuskoti upp í vinkilinn og jafnaði leikinn 2-2. Eftir að ég skoraði þetta mark var léttara fyrir mig að halda mér í liðinu, en Gumrni Þorbjörns komst ekki alveg inni í þetta strax. Svo árið eftir 1975 verða kynslóðaskipti í mfl. og þá koma fleiri strákar inn eins og Albert Guðmundsson, Maggi Bergs og svo Gummi, og eftir það einn og tveir á hverju ári. - Þú lendir þá strax er þú kemur í mfl. undir handleiðslu Youri? Já það má eiginlega segja það. - Var það ekki mjög gott? Jú! því kallinn er klassi. Hann kann mikið og er með ódrepandi áhuga á knattspyrnu, en hann þarf tvö til þrjú Atli ásamt syni sínum Agli. tímabil til að ná öllu út úr þeim mannskap er hann hefur. Hann var á mjög góðum tíma hjá Val því hann var með rétta fólkið þ.e. 17-19 ára stráka, t.d. var hann yfirleitt með okkur á 3ja tfma æfingum á hverjum degi. Það þurfti að stoppa hann af annars hefði hann haldið áfram til miðnættis með æfingamar frá kl. 18.oo, hann hafði svo mikinn áhuga á þessu og gaman. - Er hann kannski með þeim betri er þú hefurhaft? Já það má eiginlega segja það, fyrir svona félag eins og Val er hann mjög góður að vinna með bæði fyrir mfl. og ekki síður þá yngri, en hann þarf langan undirbúning. T.d. eftir að hann var búinn á æfingu hjá mfl. keyrði hann upp á Laugarvatn og þjálfaði 4. og 5. fl. sem voru þar í æfingabúðum. - Þú lærðir meir af Youry en knattspymu er það ekki, kenndi hann þér ekki eitthvað írússnesku? Jú hann kenndi mér eina setningu í 8 Skinfaxi 2. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.