Skinfaxi - 01.04.1986, Qupperneq 9
níssnesku, svo einhverju sinni er við
vorum að keppa austan tjalds ætlaði ég
að fara að kalla þetta upp, en þá bað
kallinn mig í guðanna bænum að gera
það ekki. Því þessi setning var eintóm
blótsyrði og hann vildi nú ekki að við
lentum í fangelsi fyrir þessa
tungumálakennslu sína.
- Þú lékst einhverja unglingalandsleiki.
Jú ég lék nokkra, í fyrsta skipti á móti
írum, en við töpuðum bæði hér heima
(2-0 ) og úti (3-1). Og var það synd því
þetta lið var mjög sterkt, og ég hugsa að
ísland hafi aldrei átt eins sterkt lið á
pappírunum, en undirbúningur var mjög
stuttur og lítill. Stór hluti leikmanna í
þessu liði fór svo í atvinnumennskuna.
- Upp úr þessu kemstu svo í
A-landsliðið.
Já! þegar ég var 19 ára, við Janus
komum báðir inn í liðið á móti Noregi.
- Hver varþá þjálfarí?
Það var Tony Knapp.
• Hvemig var hann?
Mér líkaði vel við Tony, hann hafði
mjög gott lag á að rífa lið upp og koma
hlutum í lag á stuttum tíma. En ég hef
ekki haft hann sem þjálfara í lengri tíma
þ.e. heilt tímabil samfellt. Hann kom
utönnum í skilning um að vinna rétt og
skapaði mikla stemmningu fyrir leiki.
' Þú ertþá búinn að vera ílandsliðinu í
10-11 ár.
Já! maður er orðinn svo mikill kall,
orðinn hundgamall. En ég hef síðustu
5-6 árin bara spilað svokallaða stigaleiki
þ.e. í Evrópu- og Heimsmeistarakeppni.
' Þú varst í fleirí íþróttum hér áður en
bara knattspymunni.
Jú maður snerti á sem flestu, t.d. fórum
við Gummi Þorbjöms á æfingu hjá 2. fl.
{ leíknum við Atletico Madrid í
Evrópu bikarkeppninni.
Skinfaxi 2. tbl. 1986
í handbolta til að stríða Sigga Dags sem
var þjálfari, en vorum það góðir að við
komumst í liðið, enda sýndum við
snilldartakta. í þeim flokki var þá t.d.
Pétur Guðmundsson körfuknattleiks-
maður, þannig að meðalhæðin var
nokkuð há en Bjami Guðmundsson dró
hana aðeins niður. Hann lék þá líka með
mfl. en við Gummi fórum aldrei svo
langt í þessu.
- En þú ferð svo að stunda blak er þú
hefurnám við íþróttakennaraskólann.
Já þá byrjaði ég að læra blak.
- Er það þá ekki nokkuð skjótur frami
og miklar framfarir að verða svo meistarí
strax næsta vor?
Jú jú! ég held að ég hafi stysta og
skjótasta frama sem nokkur hefur náð í
blaki á íslandi. Leifur Harðar hafði mikla
þolinmæði í að kenna mér blak, og er ég
viss um að ég hefði komist í landsliðið
hefði ég ekki farið strax út eftir skólann,
en þá var Leifur orðinn landsliðsþjálfari.
f"Já ég varí ungmennafélagi” j
- Þú hefur þá verið félagi í
ungmennafélagi?
Já já! ég lék með Umf. Laugdæla bæði í
blaki og í körfu, þannig að ég hef verið í
Ármanni, Val og Laugdælum fyrir utan
félögin héma útí.
- Svo kemur atvinnumennskan.
Já eftir fyrstu landsleikina byrjaði maður
að heyra um að félög væm að fylgjast
með okkur. Það er þó ekki fyrr en 1980
að ég fer að hugsa alvarlega um það að
komast í atvinnumennskuna, því það ár
lauk ég námi á ÍKÍ, en ég hafði einsett
mér að hugsa ekki um þetta fyrr.
Þegar þú varst á ÍKÍ var oft veríð að
hafa samband við ykkur Sigurlás.
Já það var verið að hringja annað slagið
og spyrjast fyrir um okkur og svo voru
blöðin stundum að segja frá félögum er
hefðu áhuga á okkur. Ég man einu sinni
eftir að það var hringt á heimavistina og
spurt eftir mér en þar sem ég var ekki
inni var beðið um Sigurlás og fór hann í
símann. Þá var í símanum einhver aðili
sem sagðist vera frá þekktu félagi í
Belgíu og vildi endilega fá okkur Lása út
til að sjá okkur. Hann sagðist senda
okkur farmiða eftir nokkra daga ásamt
fleiri upplýsingum. Ef ég man rétt þá
kom þetta í blöðunum heima, en ekki
komu miðarnir né upplýsingarnar.
Seinna frétti ég að þarna hafi verið
þekktur blaðamaður að gera at í okkur
Þrír fjórðu af fjölskyldunni þ.e. frá
vinstri Steinunn Guðnadóttir kona Atla,
Atli og Egill sonur þeirra. Á myndina
vantar dótturina Sif. Hundurínn er í eigu
Lárusar Guðmundssonar félaga Atla hjá
Bayer Urdingen.
Lása. Ég verð að segja að þetta er nú
frekar lágkúrulegur húmor að vera að gera
svona.
- Þú ferð svo íjúni 1980 til Dortmund.
Já! en áður hafði ég farið um páskana til
að skoða aðstæður og sýna hvað ég gætí.
Ég var í nokkuð góðu líkamlegu formi
en hafði ekki spilað fótbolta í 7-8
mánuði, þannig að ég var ekki í neinni
leikæfingu. En þetta gekk mjög vel á
prufuæfingunni bæði í sprettum og svo á
skotæfingunni þar sem allt gekk upp,
því ég negldi boltanum hvað eftir annað í
vinklana og bláhornin. í skallaæfing-
unum hafði ég mikla yfirburði og hafa
blakæfingamar eflaust hjálpað mér mikið
því ég stökk miklu hærra en hinir og
hirti alla bolta. Eftir þessa prufuæfingu
skrifaði ég undir samning við Dortmund
og fór svo alfarinn út í júni. Það var
mjög gott að koma strax í byrjun
tímabils og kynnast þessu öllu áður en
sjálft keppnistímabilið hæfist. Nei ég
lenti ekki í neinum sérstökum tungu-
málaerfiðleikum í byrjun, ég hafði lært
þýsku í tvo vetur í Versló og það var
mesta furða hvað maður mundi af því.
Svo kom þýskan mjög fljótt því ég varð
að einbeita mér að henni til að geta
skilið það sem átti að gera á æfingum og
í leikjum.
9