Skinfaxi - 01.04.1986, Síða 13
NSU 40 ára
frá afmælisþingi NSU í apríl s.l.
Texti og myndir: Guðmundur Gíslason
Hvað er NSU spyija eflaust margir, en
því er til að svara að NSU eru heild-
arsamtök ungmennafélaga á Norður-
löndum. Þessi samtök voru 40 ára nú í
aprfl s.l. en þau voru stofnuð 1946 í
Sanga-Saby sem er nálægt Stokkhólmi,
þar var haldið upp á 40 ára afmælið um
daginn. Þau lönd sem eiga aðild að NSU
eru nú ísland, Noregur, Danmörk,
Svíþjóð, Finnland og svo bættust
Færeyjar í hópinn á þessu afmælis-
þingi, auk þess eru Álandseyjar með
óbeina aðild. Alls eru í þessum sam-
tökum um 1,5 milljón félaga, en þar
munar mest um DDGU í Danmörku
sem hefur um 900.ooo félaga.
Eftir að afmælisþinginu lauk var hátíð-
ardagskrá þar sem fluttar voru ræður og
bók með 40 ára sögu NSU var kynnt.
Þá afhentu fulltrúar aðildarsamtakanna
HSU gjafir og afhenti Pálmi Gíslason
formaður UMFÍ formanni NSU Svend
Aage Hansen fánastöng með fána UMFÍ
og gestabók.
Að þessu loknu var boðið til kvöld-
verðar þar sem einnig voru fluttar ræður
og afhentar gjafir.
Eeir sem vilja eignast afmælisbók NSU
geta haft samband við skrifstofu UMFÍ.
Pálmi Gíslason form. UMFÍ afhendir Svend Aage Hansen formanni NSU gjöf frá UMFÍ.
Þátttakendumir á námskeiðinu og afmæli NSU.
Henry hættir
Pálmi Gíslason form. UMFÍ afhendir Hertry Gustafsson smá gjöf frá UMFÍ
Á afmælisþingi NSU tilkynnti Henry
Gustavsson að hann myndi nú hætta
sem forystumaður í sínu sambandi þ.e.
4H í Finnlandi. Að því tilefni voru
honum þökkuð mikil og góð störf
innan NSU með ósk um gæfu og gengi.
Pálmi Gíslason formaður UMFÍ afhenti
Henry smá gjöf frá UMFÍ fyrir mjög
gott samstarf, en Henry hefur alltaf
verið mjög hjálplegur og vinveittur
UMFÍ í gegnum tíðina. Hann getur
meira að segja lesið smávegis í
íslensku, og les hann stundum
Skinfaxa.
Skinfaxi 2. tbl. 1986
13