Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1986, Qupperneq 14

Skinfaxi - 01.04.1986, Qupperneq 14
[p CD [p [p ÍT © 33 a "Spilum ánægjunnar vegna" Spjallað við meðlimi Bítlavinafélagsins Texti: Krístján Krístjánsson Bítlavinafélagið!! Það eru eflaust margir sem hafa heyrtþað nefnt, en kannski ekki allir sem vita hvað það er. Poppfaxi ákvað að upplýsa málið og boðaði meðlimi "Bítlavinafélagsins" á Borgina, og undir 5 lítrum afkaffi upplýstu þeir fyrir lesendur "Skinfaxa" hverjir þeir væru og hvað þeir ætla að gera. BÍTLA VINAFÉLA GIÐ í Bítlavinafélaginu eru fimm meðlimir. Það eru: Rafn Jónsson sem lemur á húðir í gríð og erg. Jón Ólafsson sem slær á svartar nótur og hvítar auk þess sem hann þenur raddböndin (og tekur áhorfendur stundum í danskenn- slu). Stefán Hjörleifsson sem spilar á gítar og syngur. Eyjólfur Kristjánsson sem spilar líka á gítar og syngur (og þeir deildu um hvor væri betri). Og síðast en ekki síst, Haraldur Þorsteinsson sem plokkar á bassa og er aldursforseti félagsins, og gerir allt sem hann getur til að passa að strákamir fari sér ekki að voða. Allt eru þetta landskunnir menn að eigin sögn. - Afhveiju var Bítlavinafélagið stoíhað? Stefán: Ja, þetta byijaði með því að Jón hringdi í mig einn góðan veðurdag og sagði að það vantaði hljómsveit til að spila undir hjá kór Verslunarskólans, og við söfnuðum saman þessum mætu mönnum hér við borðið og stofnuðum hljómsveit til að spila undir hjá kórnum. Næsta skref vað að hann Eyjólfur hringdi, og var þá kominn með annað verkefni sem var "Lennon-kvöld" á Gauk á Stöng. Og þannig hlóð þetta allt saman utan á sig, og það endaði með að við vorum komnir með 70 laga prógram, og hreinlega neyddumst til að halda áfram. (stunur við borðið) - Hvað ætlið þið að spila lengi saman ? Jón: Við ætlum að spila saman í sumar, og þá aðallega út á lands- byggðinni. Stefán: Já, við erum búnir að spila á flestum stöðum hér í borginni, og finnst kominn tími til að landsbyggðin fái að njóta okkar. Jón: Við hættum svo í haust, þá fer ég út að læra. Allir: Og við bíðum spenntir eftir þeim degi. Jón: Ég verð nú að lýsa aðdáun rninni yfír því að strákamir þora að spila með mér. Og svo seinna í sumar ætlum við að gefa út fjögurra laga "Mono" plötu. TÓNLISTARFERILLINN Svo við snúum okkur að öðru, hvemig stóð áþví að þið leiddust inná tónlistarbrautina? Jón: Ég er kominn af tónlistar- fjölskyldu. Pabbi spilaði á gítar og mamma á píanó, þannig að það gaf augaleið að ég myndi byrja að fikta á hljóðfæri fyrr eða síðar. Og ég byijaði að fikta á píanó, og fór svo að læra fyrst hjá Þorsteini Haukssyni sem var í hinni landsfrægu hljómsveit "Töturum". Síðan lá leiðin í Tónlistarskóla Kópa- vogs, og loks tvö ár í F.Í.H. Svo er ég á leiðinni til Hollands í haust að læra. Ég byijaði ekki að spila í hljómsveitum fyrr en ég var 17 ára. Þá spilaði ég með "Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar" á Hótel Sögu. Hann kenndi mér ýmislegt sem ég hef reynt að komast hjá því að nota. Síðan stofnuðum við Stefán hljómsveit í Versló, sem hét "Fjórir strákar af Grundarstíg". Síðan komu "Bringuhárin, Toppmenn, Töfraflautan, Possibilles" og loks Bítlavinafélagið. Eyjólfur: Ja, ég kann nú bara ekkert að spila. Mér hefur alltaf dreymt um að verða poppstjama. Og ég er alveg viss um að ég á eftir að verða það einhvem daginn. Það er bara verst hvað ég er hóvær. Ég er sennilega hógværasti maðurinn á íslandi. En ég byijaði fyrst að spila á gítar í sveitinni. Þá kenndi frændi minn mér tvö grip á gítar, og ég hefþróaðþau grip með mér síðan. Þá var Eyjólfur spurður um það hvenær hann spilaði fyrst opinberlega, og viti menn, allir hinir meðlimir Bítlavinafélagsins lögðust undir borð af hlátri. Eyjólfur: Manstu eftir "Texas-tríó- inu"? Þegar að kúrekabylgjan lagðist sem mest yfir landið í kjölfar kvikmyndarinnar "Urban Cowboy", þá var stofnað í Óðali "Texas-trfóið". Það var kallað "Stund í stiganum". Þá stóðum við í stiganum í Óðali með kúrekahatta og í röndóttum skyrtum, og spiluðum fyrir fólk. Ha ha ha, það var nú meiri vitleysan. Síðan var "Hálft í hvom" stofnað og ég spilaði með þeim í fimm ár. Og nú er það Bítla- vinafélagið. Og ég vil gjaman láta það koma fram að ég er stoltur að spila með þessum strákum. (Lesendur geta ímyndað sér viðbrögð hinna) 14 Skinfaxi 2. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.