Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1986, Page 17

Skinfaxi - 01.04.1986, Page 17
Fréttir frá Umf. Skafta Texti: Ragnheiður G. Júlíusdóttir Umf. Skafti er sameiginlegt félaga íbúa í Álftaveri og Skaftártungu. Félagið var stofnað árið 1971. Lengst af var starf- semi þess með ágætum og á tímabili var mikill áhugi hér fyrir íþróttum og félagar voru mjög virkir í þeim. En svo var eins og botninn dytti úr starfsemi Skafta fyrir 4 árum eða svo. Má segja að síðan hafi lítil sem engin starfsemi verið hjá Umf. Skafta. Því var brugðið á það ráð að reyna að endur- vekja félagið með formlegum endurreisnar- fundi 22. feb. s.l. Á þeim fundi var m.a. kosin ný stjóm í félagið og um leið var stjómarmönnum fjölgað úr 3 í 5. Fyrsta verkefni stjómarinnar var samning nýrra laga fyrir félagið, því einhverra hluta vegna höfðu upphafleg lög félagsins tapast. Hin nýju lög vom síðan lögð fyrir félagsfund sem haldinn var fimmtudaginn 27. mars s.l. og samþykkt þar. Á félagsfundinum var að sjálfsögðu sitt- hvað rætt um starfsemina í sumar, svo sem eins og íþróttamál, aðstöðu o.m.fl. í þeim dúr. Á sínum tíma hafði félagið smá aðstöðu til íþróttaæfinga en nú er sú aðstaða ekki fyrir hendi lengur og því ekki bjart útlit í þeim efnum fyrsta kastið. En aftur á móti er nú komið í gagnið nýtt og stórglæsilegt félags- heimili, staðsett við Hemm í Skaftár- tungu. Er það engin spuming að sú aðstaða sem þar er fyrir hendi mun verða rnikil lyftistöng fyrir starfsemi allra þeirra félaga sem starfandi eru hér á þessu svæði og þar á meðal Skafta, og þá ekki síst yfir vetrarmánuðina. Félagatala Umf. Skafta er ekki vitað um með vissu þar sem endurskoða þarf félagaskránna, en á sínum tíma voru félagar á milli 40 og 50 þegar flest var. Félagið stóð fyrir fjölskyldubingói 29. mars s.l. þar sem margir góðir vinn- ingar vom. Má til gamans geta þess að Kaupfélögin í Vík og á Kirkjubæjar- klaustri, verslunin Nýland h.f. í Vík og svo bankarnir er hér þjóna í sýslunni, gáfu flesta vinninganna og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir sýndan velvilja í garð Umf. Skafta. Helgina 7.-9. mars s.l. var haldið félags- málanámskeið á vegum Umf. Skafta og fréttabréfsins "Tungutals" sem er nýtt fréttabréf í Skaftártungu og jafnframt einkaframtak ungs bónda þar í sveit, Brands Guðjónssonar í Hvammi. Þátt- taka á námskeiðinu var ágæt miðað við fólksfjölda hér í sveitum, þ.e. 13 þátt- takendur. Leiðbeinandi var Sæmundur Runólfsson frá Vík. Námskeiðið tókst í alla staði vel, að mestum hluta var farið í starfsemi félaga og uppbyggingu þeirra, fundarsköp, ræðumennsku og hópstarf. Síðasta dag námskeiðisins var bryddað upp á nýjung þar sem allir þátttakendur fluttu mál sitt fyrir framan myndbandsupptökutæki og í lok nám- skeiðisins var það síðan skoðað í sjónvarpi, flestum til óblandinnar ánægju. Kunnum við Sæmundi Run- ólfssyni bestu þakkir fyrir gagnlegt og skemmtilegt námskeið. Stjórn Umf. Skafta skipa nú: Ragnheiður G. Júlíusdóttir form. Róbert Siguijónsson ritari Brandur Guðjónsson gjaldkeri Jóhannes Gissurarson meðstj. Sigfús Sigurjónsson meðstj. F.h. Umf. Skafta Ragnheiður G. Júlíusdóttir Félagsvinurinn í Öræfum var gefið út blað í 25 ár eða frá 1937 til 1962 sem hét Félagsvinurinn. Blað þetta var handskrifað í stílabækur og kom út þrisvar sinnum á ári. Komu alls út 67 blöð á þessum árum, en Páll Þorsteinsson alþm. byrjaði útgáfu þessa og sá um hana fyrstu 5 árin. Þorsteinn Jóhannsson kennari tók við af Páli og sá um hana það sem eftir var eða í 20 ár. Þessir tveir menn sáu að mestu um að rita í blaðið jafnframt því sem þeir fengu sent efni í það, og var Sigurður Bjömsson á Kvískerjum duglegur við að skrifa í það. Skinfaxi 2. thl. 1986 17

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.